Sætar kartöflur, spergilkál, spínat og avacado

Til að koma spínati ofan í litlu krílin getur stundum þurft að dulbúa það enda er það svolítið rammt og bragðsterkt svona eitt og sér. Þetta mauk er mjög járnríkt, inniheldur holla fitu úr avocadoinu og er ágætlega sætt. Maukið er einnig afar vítamínríkt, sérstaklega af C vítamíni sem á að aðstoða við upptöku járnsins. Maukið hentar 9 mánaða og eldrei en einnig má gefa yngri börnum það ef það er meira maukað.

Ef þið notað frosið spínat, látið það þá þiðna og kreistið allt vatn úr því.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
 

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Sætar kartöflur, spergilkál, spínat og avacado

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 150 g spergikál (brokkolí), þvegið og brotið í sprota
  • 150 g sætar kartöflur, skrældar, þvegnar og saxaðar gróft
  • 50 g spínat, þvegið og saxað gróft
  • 50 g vel þroskað avocado, afhýtt og saxað gróft
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
     

Aðferð

  1. Skrælið kartöflurnar, þvoið og saxið gróft.
  2. Þvoið spergilkálið og brjótið í sprota.
  3. Þvoið spínatið mjög vel og saxið gróft. Ef þið notið frosið spínat látið það þá þiðna, kreistið vatnið úr því og saxið gróft.
  4. Afhýðið avocadoið, fjarlægið steininn og saxið avocadoið gróft.
  5. Gufusjóðið spergilkál og sætar kartöflur í 15-20 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjúkt. Spínatið þarf aðeins nokkrar mínútur svo bætið því við í lokin.
  6. Stappið spergilkálið vel ásamt olíu og mjólk. Ef  illa gengur að stappa grænmetið má setja það andartak í matvinnsluvél eða blandara eða nota töfrasprota til að mauka það svolítið. Setjið í skál.
  7. Stappið sætu kartöflurnar og setjið í skálina.
  8. Bætið spínatinu út í og hrærið vel.
  9. Stappið avocadoið og bætið því út í skálina. Hrærið vel. Bætið svolitlu af mjólk eða soðvatni út í fyrir mýkri áferð.

Gott að hafa í huga

  • Gufusoðnir spergilkálssprotar eru upplagðir fyrir litla fingur til að setja upp í sig. Brjótið sprotana í minni sprota og leyfið barninu að setja upp í sig. Ávallt skal fylgjast með barni sem er að mata sig sjálft.
  • Upplagt er að blanda litlum kjöt-, eða fiskbitum út í maukið.
  • Maukið má frysta en athugið að það verður ekki fallegt á litinn.
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!