Sætar kartöflur í hnetu- og engifersósu

Sætar kartöflur eru notaðar mikið í vestur Afríku og ásamt hnetum gerir þennan rétt bæði saðsaman og sætkryddaðan. Það er kannski svolítið skrítin innihaldlýsingin...ananassafi, hnetusmjör og hvítkál!!! Trúið mér samt að maturinn er rosa góður. Rétturinn hentar börnum einkar vel þar sem hann er mildur en mátulega kryddaður og fullur af hollu grænmeti. Þess skal þó gætt að börnin hafi ekki ofnæmi fyrir hnetum áður en þau byrja að borða matinn þar sem jarðhnetur eru einn almesti ofnæmisvaldur sem þekkist. Þessi réttur er úr bókinni World Food Cafe og heitir eftir samnefndum veitingastað í London. Staðurinn er einn af mínum uppáhaldsstöðum í London og bókin er ein af mínum uppáhalds líka. Ég á eftir að setja inn margar uppskriftir úr þessari bók á vefinn. Kannski geri ég einhvern tímann svona World Food CafeSigrun bók... hver veit! Gerið nóg af þessum mat því hann er rosa góður daginn eftir og helst ef hann fær að malla á vægum hita undir loki í einhvern tíma áður en hann er borinn fram.

Athugið að ef þið eruð viðkvæm fyrir lauk má sleppa honum og nota 0,5 tsk af karrýdufti í staðinn.


Litríkur, afrískur grænmetisréttur

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án mjólkur
  • Án eggja
  • Vegan

Sætar kartöflur í hnetu- og engifersósu

Fyrir 4-6

Innihald

  • 1 stór laukur, afhýddur og saxaður smátt (má sleppa)
  • 4 hvítlauksrif, afhýtt og saxað smátt
  • 5 sm bútur ferskt engifer, afhýtt og saxað smátt
  • 1 msk kókosolía
  • 750 g sætar kartöflur, saxaðar í smáa teninga (eins og sykurmola)
  • 450 g hvítkál, saxað í bita
  • 1 tsk paprika
  • 1 tsk cayenne pipar
  • 400 g plómutómatar, saxaðir (ferskir eða í dós)
  • 300 ml hreinn ananassafi
  • 4 msk mjúkt hnetusmjör (lífrænt framleitt og án sykurs)
  • 0,5 tsk svartur pipar
  • Salt (Himalaya eða sjávarsalt)

Ofan á:

  • 2 gulrætur, afhýddar og rifnar á rifjárni
  • 1 stór rauðrófa, afhýdd og rifin á rifjárni
  • 2 meðalþroskaðir bananar, sneiddir
  • Safi úr 1 límónu
  • Hnefafylli ferskt coriander, rifið (má sleppa)

Aðferð

  1. Afhýðið lauk, engifer og hvítlauk og saxið allt smátt.
  2. Saxið hvítkálið frekar smátt.
  3. Skrælið sætu kartöflurnar og skerið í frekar stóra smáa teninga.
  4. Hitið kókosolíu á stórri pönnu.
  5. Steikið laukinn þangað til hann verður mjúkur. Notið vatn ef þarf meiri vökva.
  6. Bætið hvítlauknum og engiferinu saman við og steikið í nokkrar mínútur.
  7. Bætið hvítkálinu og sætu kartöflunum saman við og hitið vel.
  8. Þegar grænmetið fer að verða mjúkt bætið þá paprikunni og cayenne piparnum saman við. Hrærið vel.
  9. Bætið tómötunum og ananassafanum saman við og hrærið vel.
  10. Setjið lok á pönnuna og látið malla þangað til grænmetið er allt orðið mjúkt eða í um 20 mínútur (eða lengur).
  11. Setjið hnetusmjörið saman við og hrærið allt vel saman.
  12. Saltið og piprið eftir smekk.
  13. Á meðan rétturinn mallar er best að undirbúa það sem á að fara ofan á:
  14. Sneiðið bananana frekar gróft.
  15. Skrælið gulræturnar og rauðrófuna og rífið á rifjárni (gulræturnar fyrst). Gott er að nota hanska við að rífa rauðrófuna því hún litar ansi mikið.
  16. Takið réttinn af pönnunni og setjið í fallega skál. Dreifið bananasneiðunum ofan á, svo gulrótum og rauðrófu þar ofan á. Kreistið að lokum límónusafa yfir.
  17. Rífið coriander í höndunum og dreifið yfir réttinn.

Gott að hafa í huga

  • Berið fram með hýðishrísgrjónum eða byggi, chapati brauði og raita gúrkusósu.
  • Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
  • Sleppa má lauknum og nota 0,5 tsk af karrý í staðinn.