Perumauk

Þetta mauk er hentugt sem fyrsta ávaxtamaukið því perur hafa þann eiginleika að vera nánast lausar við ofnmæmisvaldandi efni. Perur fara líka vel í magann á flestum börnum en geta reyndar verið stemmandi. Gott getur verið að blanda smávegis af móðurmjólkinni eða þurrmjólk saman við maukið til að byrja með. Best er að prófa sætari mauk á eftir t.d. grænmetismauki til að venja börnin ekki við sæta bragðið strax. Kaupið vel þroskaðar perur og auðvitað lífrænt ræktaðar ef þið mögulega getið. Gott er að blanda maukið saman við epla- eða bananamauk til auka fjölbreytni.

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Perumauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 350 g vel þroskaðar perur, skrældar, þvegnar og saxaðar gróft
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
     

Aðferð

  1. Skrælið perurnar, þvoið þær, kjarnhreinsið og saxið gróft.
  2. Gufusjóðið perurnar í 6-7 mínútur eða þangað til þær eru farnar að mýkjast.
  3. Notið töfrasprota til að mauka perurnar en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu.
  4. Bætið olíu og mjólk saman við og hrærið vel.
     

Gott að hafa í huga

  • Bæði perur og epli innihalda pectin sem geta hægt á niðurgangi (og eru þ.a.l. stemmandi).
  • Gott er að blanda perumauki við annað ávaxtamauk eins og eplamauk, mangomauk, bananamauk eða papayamauk.
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!