Mauk úr sætum kartöflum

Sætar kartöflur eru afar gómsætar sérstaklega fyrir minnstu sælkerana. Litlu börnunum líkar yfirleitt afar vel við sætt, milt bragðið og maukið fer einnig vel í magann. Gott er að nota mauk úr sætum kartöflum saman við mauk úr venjulegum kartöflum, sérstaklega ef börnin eru treg til að borða venjulegar kartöflur. Mauk úr sætum kartöflum má líka blanda saman við annað grænmeti eins og spergilkál og blómkál og jafnvel ávexti eins og perur eða epli. Það er því afar hentugt sem grunnmauk. Einnig henta sætar kartöflur fyrir eldri börnin með svolítið af fiski eða kjöti.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
 


Ljúfar, mildar og bragðgóðar

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Mauk úr sætum kartöflum

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 350 g sætar kartöflur, skrældar, þvegnar og saxaðar gróft
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
     

Aðferð

  1. Skrælið sætu kartöflurnar, þvoið og saxið gróft.
  2. Gufusjóðið kartöflurnar í um 10-15 mínútur eða þangað til þær eru mjúkar.
  3. Notið töfrasprota til að mauka kartöflurnar en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Ef illa gengur að mauka kartöflurnar má nota svolítið af soðvatninu.
  4. Bætið olíu og mjólk saman við og hrærið vel.

Gott að hafa í huga

  • Gott er að blanda fiski og kjöti (eða meira grænmeti) saman við fyrir eldri börnin.
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
    Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!