Mangomauk

Mango eða papayamauk er hentugt mauk fyrir litlu krílin en það þarf að gæta þess að ávöxturinn sé vel þroskaður því annars er hann allt of súr. Einnig þarf að gæta þess að mangoið sé mjög vel blandað með töfrasprota eða matvinnsluvél því mango er trefjaríkur ávöxtur og oft litlir trefjaþræðir sem leynast í bitunum. Það borgar sig því að gufusjóða mango svo að mjúk áferð náist. Papaya þarf hins vegar ekki að gufusjóða og því fljótlegt að útbúa það. Þegar barnið er farið að borða aðrar mjólkurvörur en móðurmjólk/þurrmjólk er gott að blanda svolítið af hreinni jógúrt út í mangomaukið, láta það vera í ísskápnum yfir nótt og þannig fæst þess líka dásamlegi smoothie. Ef jógúrtin liggur ekki í mangomaukinu yfir nótt er það heldur súrt í munni en allt í lagi fyrir barnið auðvitað. Hafið bara myndavélina tilbúna því það gæti komið dásamlegur svipur á barnið í fyrstu skiptin!

Þegar barnið er eldra má búta vel þroskað mangoið í litla bita og leyfa barninu að dunda við að raða upp í sig en einnig má hræra bitunum saman við jógúrt.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
 

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Mangomauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 350 g vel þroskað mango (ætti að gefa aðeins eftir ef ýtt er í það)
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
     

Aðferð

  1. Afhýðið mangoið og skerið kjötið í bita (skera varlega langsum meðfram steininum).
  2. Gufusjóðið mangoið í 6-8 mínútur eða þangað til það er farið að mýkjast.
  3. Notið töfrasprota til að mauka mangoið en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Ef illa gengur að mauka má nota svolítið af soðvatninu til að mauka með.
  4. Bætið olíu og mjólk saman við og hrærið vel.

Gott að hafa í huga

  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!