Kartöflumauk

Kartöflumauk eitt og sér er ekki endilega lystugt né gott á bragðið en maukað saman við ýmislegt annað grænmeti er það góð viðbót í fjölbreyttri fæðu ungs barns. Gott er að blanda kartöflunum saman við t.d. gulrætur, sætar kartöflur, maískorn og margt fleira. Þar sem kartöflur eru hentugar til að mauka með öðru hráefni er gott að byrja að gefa þær þegar barnið er farið að smakka annan mat. Ólíklegt er að barnið vilji kartöflumauk eitt og sér (þó aldrei að vita).

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Kartöflumauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 350 g kartöflur, skrældar, þvegnar og saxaðar gróft
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk

Aðferð

  1. Skrælið kartöflurnar, þvoið þær og saxið gróft.
  2. Gufusjóðið kartöflurnar í um 10-15 mínútur eða þangað til þær eru mjúkar.
  3. Best er að stappa kartöflurnar mjög vel með olíunni/smjörinu því ef þær eru maukaðar með töfrasprota eða í matvinnsluvél/blandara, verða áferðin óspennandi. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu. Ef erfitt er að stappa kartöflurnar má stappa þær með svolitlu af soðvatninu.
  4. Bætið mjólkinni saman við og hrærið vel.

Gott að hafa í huga

  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!