Heitsúr (hot & sour) súpa

Þetta er eiginlega svona núðlusúpuréttur þ.e. bæði núðlusúpa og núðluréttur. Upphafleg uppskrift inniheldur ekki soba núðlur (úr bókhveiti) en það er hrikalega gott að hafa þær með. Ég nota líka stundum hrísgrjónanúðlur en nota má hvaða núðlutegund sem er í þennan rétt. Maður getur í raun ákveðið hvort maður vill hafa uppskriftina „súpulega" eða „núðlulega" með því að hafa meira eða minna soð! Afskaplega seðjandi og góð. Upplögð súpa til að drýgja það sem er til í niðursuðudósunum og grænmetisskúffunni. Svo er mjög fínt að gera stóra uppskrift og borða í 2 daga og jafnvel í nesti. Mjög góð með rifnum kjúklingi líka er mér sagt og gerir hana auðvitað matarmeiri.

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án mjólkur
  • Án eggja
  • Án hneta
  • Vegan

Heitsúr (hot & sour) súpa

Fyrir 3-4

Innihald

  • 4 sveppir, skornir í þunnar sneiðar
  • 125 g stíft tofu (firm), skorið í þunna strimla (2cm x 5 mm)
  • 60 g baby mais (eða niðursoðnir bambussprotar)
  • 600-1000 ml vatn (eða meira vatn ef þið viljið meiri vökva á móti núðlunum)
  • 2-3 gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel
  • 60 g frosnar, grænar baunir (enska: peas)
  • 1-2 msk tamarisósa
  • 2 msk hvítvínsedik (enska: white wine vinegar)
  • 2 msk maísmjöl (enska: cornflour en einnig má mota arrow root)
  • Salt (Himalaya eða sjávarsalt) og svartur pipar eftir smekk 
  • 1 msk sesamolía
  • 250 g hrísgrjónanúðlur eða aðrar núðlur sem ykkur finnst góðar

Aðferð

  1. Sjóðið hrísgrjónanúðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum, kælið og leggið til hliðar.
  2. Skerið sveppi í sneiðar og tofu í strimla. Steikið á pönnu í 1 matskeið tamarisósu og nokkrum matskeiðum af vatni.
  3. Hellið sjóðandi vatni yfir grænmetiskraftinn og látið sjóða.
  4. Bætið sveppunum, tofui, mambussprotum (ef notaðir) og baunum eða baby mais út í. Sjóðið í 2 mínútur og hrærið mjög varlega til að brjóta ekki tofouið.
  5. Blandið saman tamarisósunni, edikinu og maísmjölinu með 2 msk af vatni. Hrærið þessu saman við súpuna.
  6. Látið súpuna sjóða og kryddið með salti og pipar ef þarf. Hitið í um 15 mínútur.
  7. Bætið við 300 g af soðnum/grilluðum kjúklingi ef þið viljið. Hitið í 5-6 mínútur.
  8. Bætið hrísgrjónanúðlunum út í súpuna.
  9. Skiptið súpunni á milli nokkurra skála. Setjið nokkra dropa af sesemolíu út á hverja skál.
  10. Berið fram í djúpum, austurlenskum skálum ef þið eigið þannig til en annars bara í venjulegum súpuskálum og með skeiðum.

Gott að hafa í huga

  • Í staðinn fyrir grænar baunir er hægt að nota maísbaunir
  • Það má sleppa tofuinu og nota meira af grænmeti í staðinn t.d. gulrætur, baunaspírur, papriku o.s.frv.
  • Nota má rækjur í súpuna í staðinn fyrir tofu.
  • Stíft tofu fæst í stærri matvöruverslunum og heilsubúðum. Ekki ætti að nota mjúkt tofu í staðinn.
  • Gerlausir grænmetisteningar fást í heilsubúðum og stærri matvöruverslunum.
  • Ef þið eruð ekki viðkvæm fyrir geri getið þið notað venjulega, lífrænt framleidda grænmetisteninga.
  • Nota má aðrar núðlur í súpuna t.d. udon núðlur (innihalda hveiti) eða soba núðlur (má sleppa en þá er súpan reyndar ósköp þunn)

Ummæli um uppskriftina

Engin ummæli hafa verið rituð

Skrifa ný ummæli

Vinsamlegast athugið að reiti merkta með * þarf að fylla út.
 
Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
Þessi spurning hér að neðan er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.
Vinsamlegast leggðu saman tölurnar og skrifaðu niðurstöðurnar. T.d. fyrir einn plús þrír, skaltu skrifa 4.
fjórir plús núll eru