Gulrótarmuffins

Þetta er sama grunnuppskrift og í gulrótarkökunni með kreminu. Jóhannesi finnst gulrótarkakan svo góð og af því hann er svo mikill muffinskarl þá datt honum í hug að gæti verið gott að búa til muffins úr sama deigi. Það reyndist rétt því muffinsarnir&;eru mjög góðir&;úr þessu deigi. Þeir eru líka stútfullir af vítamínum og trefjum. Það er ofsalega gott að setja saxaðar pecanhnetur eða valhnetur í deigið og einnig hef ég stundum notað kremið af gulrótarkökunni til að búa til cupcakes (muffins með kremi).


Gulrótarmuffins, hollir og bragðgóðir

Þessi uppskrift er:

  • Án mjólkur
  • Án hneta

Gulrótarmuffins

Gerir 10-12 muffins

Innihald

  • Rifinn börkur af 1 appelsínu
  • 200 g gulrætur, skrældar og rifnar gróft á rifjárni
  • 225 g spelti
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1,5 tsk kanill
  • 0,5 tsk múskat (enska: nutmeg)
  • 0,5 tsk negull (enska: clove)
  • 0,5 tsk engifer
  • 1 tsk vanilludropar (úr heilsubúð)
  • 100 g rapadura hrásykur (eða annar hrásykur)
  • 2 stór egg
  • 1 msk kókosolía
  • 190 ml lífrænt framleiddur barnamatur án sykurs; epla-, peru-, eða aprikósumauk
  • 175 g rúsínur

Aðferð

  1. Rífið appelsínubörkinn fínt á rifjárni. Gætið þess að rífa ekki í hvíta hlutann heldur rífið einungis börkinn sjálfan.
  2. Skrælið gulræturnar og rífið gróft á rifjárni.
  3. Hitið ofninn í 170°C.
  4. Sigtið saman í stóra skál: spelti, lyftiduft, negul, engifer og múskat. Hrærið aðeins. Bætið appelsínuberki, rúsínum og gulrótum saman við og hrærið vel.
  5. Í aðra skál skuluð þið blanda saman rapadura hrásykri, eggjum, barnamat, vanilludropum og kókosolíu. Hellið út í stóru skálina og hrærið varlega. Gætið þess að hræra ekki of mikið, bara rétt svo þannig að deigið blandist saman (um það bil 10 hreyfingar er nóg).
  6. Takið til silicon muffinsform. Setjið nokkra dropa af kókosolíu í eldhúsþurrku og strjúkið holurnar að innan.
  7. Fyllið hverja holu nánast upp að rönd með deigi. Gott er að nota ískúluskeið.
  8. Bakið við 170°C í um 30-35 mínútur.

Gott að hafa í huga

  • Ef maður notar ekki olíu eða smjör í deigið þá getur maður hvorki notað venjuleg muffins pappírsform, né muffinsbökunarplötu úr járni. Það fást sem sé ekki muffins pappírsform sem maður getur bakað í án þess að þurfa að nota smjör eða olíu í deigið. Það sem þið getið gert er að sníða hringi úr bökunarpappír. Strikið með penna utan um undirskál og klippið út. Setjið svo í hverja muffinsholu. Það er hægt að nota muffinspappírinn í allt að sex skipti. Ef þið notið silicon muffinsform þurfið þið ekki bökunarpappír.
  • Gott er að setja eina lúku af söxuðum pecan- eða valhnetum út í deigið.
  • Notið hamingjuegg ef þið mögulega getið.
  • Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
  • Ég nota Hipp Organic, Organix eða Holle barnamat. Þessi merki eiga það sameiginlegt að vera lífrænt framleidd og eru ekki með viðbættum sykri.
  • Í staðinn fyrir barnamat má nota eplamauk (enska: Apple sauce) úr heilsubúð eða heilsudeildum matvöruverslana.
  • Ef afgangur er af barnamatnum má frysta hann í ísmolabox og nota í drykk síðar (smoothie).

Ummæli um uppskriftina

evahuld
27. júl. 2011

Ég prófaði þessar í gær og þetta er með því besta sem ég hef smakkað, bara ,,ever" :-)

sigrun
28. júl. 2011

Gaman að heyra :)

Sigga Valdimars
01. mar. 2013

Rosaleg góð og heilsusamleg muffins :)

sigrun
02. mar. 2013

Dásamlegt, takk fyrir að deila með okkur :)