Graskerssúpa með grilluðum maískornum
Þessi uppskrift kemur nánast beint upp úr Delia Smith grænmetisbókinni minni (Delia's Vegetarian Collection) sem er frábær. Mæli alveg með henni. Ég notaði reyndar ekki smjöri og ég notaði léttmjólk í stað nýmjólkur. Mín súpa varð ljósari en súpan hennar Deliu (svona fyrir utan að vera örugglega photoshopuð þ.e. breytt í tölvu) þá grunar mig að graskerið sem ég notaði hafi ekki verið alveg fullkomlega ferskt (var sko að prófa grasker í fyrsta skipti með þessari súpu) svo súpan á líklega að verða aðeins appelsínugulari. Súpan sjálf er prýðisgóð og þetta er frekar stór uppskrift sem dugar manni í marga daga. Ódýr en seðjandi matur og fullkomið að búa til brauðbollur með til að dýfa í súpuna á köldum haustdegi. Grasker er mjög hollt að sjálfsögðu, fullt af Beta-Carotine sem er andoxunarefni sem á að hjálpa okkur að sporna t.d. gegn krabbameini. Svo getur maður ristað graskersfræin og notað þau í brauð eða ofan á salat, ekki amalegt það, enda eru þau svo holl að maður ætti að borða þau á hverjum einasta degi. Þau innihalda m.a. prótein, kalíum, zinc, járn og hollar fitusýrur. Zinc er sérstaklega gott fyrir karlmenn! Ef þið fáið stórt grasker getið þið soðið það, maukað og fryst t.d. til að nota afganginn í kryddað graskerskökubrauð. Súpan er glúteinlaus og hnetulaus og auðvelt er að gera hana mjólkurlausa og þannig að hún henti jurtaætum (enska: vegan).
Athugið að best er að nota matvinnsluvél, blandara eða töfrasprota til að mauka súpuna.

Graskerssúpa með grilluðum maískornum
Þessi uppskrift er:
- Án glúteins
- Án eggja
- Án hneta
Þessa uppskrift er auðvelt að gera:
- Án mjólkur
- Vegan (fyrir jurtaætur)
Graskerssúpa með grilluðum maískornum
Innihald
- 700 g grasker, afhýtt, fræhreinsað og saxað í 2,5cm bita
- 570 g maískorn, frosin, fersk eða úr dós (ekki sykurbætt)
- 1 tsk kókosolía
- 1 laukur, saxaður gróft
- 275 ml léttmjólk
- 725 ml vatn
- 2 gerlausir grænmetisteningar
- Salt (Himalaya eða sjávarsalt) eftir smekk
- Svartur pipar eftir smekk
- 1 msk tamarisósa (fyrir maískornin)
Aðferð
- Afhýðið lauk og saxið gróft.
- Afhýðið graskerið, fræhreinsið og saxið í um 2,5 sm bita.
- Hitið kókosolíu í potti og steikið laukinn í um 8 mínútur eða þangað til hann er orðinn mjúkur. Bætið við vatni ef þarf meiri vökva.
- Bætið saxaða graskerinu út í ásamt helmingnum af maískornunum.
- Hrærið vel og saltið og piprið.
- Lækkið hitann og leyfið grænmetinu að svitna aðeins eða í um 10 mínútur.
- Bætið mjólkinni út í ásamt grænmetiskraftinum og látið malla með lokið ofan á (ekki samt loka alveg því mjólkin getur auðveldlega soðið upp úr. Fylgist því vel með pottinum).
- Á meðan þetta er að malla skuluð þið stilla ofninn á 220°C.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og dreifið afganginum af maískornunum vel á bökunarpappírinn. Dreifið mjög vel.
- Setjið bökunarplötuna í um 3 cm fjarlægð frá mesta hitanum (yfirleitt efst uppi í ofninum).
- Hitið í um 8 -10 mínútur. Hrærið aðeins í maískornunum eftir um 4 mínútur. Stillið ofnklukku svo þið gleymið ykkur ekki (tala af reynslu).
- Þegar maískornin eru orðin gullbrún má taka þau úr ofninum.
- Skvettið strax smávegis af tamarísósu yfir (um 1 msk eða svo) og nuddið maískornunum aðeins upp úr sósunni. Einnig má salta þau ef ykkur þykir það þægilegra. Slökkvið á ofninum og setjið bökunarplötuna aftur inn í hann. Leyfið maískornunum að kólna í nokkrar mínútur.
- Þegar súpan er tilbúin skuluð þið nota töfrasprota eða matvinnsluvél (eða blandara) til að blanda súpuna. Þið ráðið hvort hún er alveg maukuð eða með smá bitum í.
- Berið fram í skálum og dreifið bökuðu maískornunum yfir. Ekki gleyma þeim, því þau eru æði. Yfirleitt er ég búin að borða a.m.k. helminginn af þeim áður en þau komast í súpuna, hmmm...
Gott að hafa í huga
- Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
- Nota má aðra olíu en kókosolíu, t.d. vínberjakjarnaolíu eða repjuolíu.
- Nota má sojasósu í staðinn fyrir tamarisósu en athugið að sojasósan inniheldur hveiti.
- Gerlausir grænmetisteningar fást í heilsubúðum og stærri matvöruverslunum.
- Ef þið eruð ekki viðkvæm fyrir geri getið þið notað venjulega, lífrænt framleidda grænmetisteninga.
- Nota má hrísmjólk, möndlumjólk, sojamjólk eða haframjólk í staðinn fyrir léttmjólk.







Ummæli um uppskriftina
Engin ummæli hafa verið rituð
Skrifa ný ummæli