Graskersmauk

Þetta mauk er sniðug viðbót fyrir ungbörnin því grasker er milt og gott og ekki of sætt. Það hentar vel sem grunnmauk sem maður getur fryst og bætt svo alls kyns hráefni út í. Fyrir eldri börn má setja meira grænmeti og jafnvel kjöt eða fisk út í maukið. Grasker er afar hollt og inniheldur m.a. A og C vítamín, andoxunarefni, á að stuðla að heilbrigðri sjón og heilbrigðu ónæmiskerfi. Gott er að bæta svolitlu af járnríku grænmeti út í maukið (t.d. spínat, spergilkál (brokkolí)) o.fl. því C vítamínið hjálpar til við upptöku járnsins. 

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.
 


Graskersmauk fyrir smáfólkið

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Graskersmauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 400 g grasker eða butternut squash (þyngd fyrir verkun)
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör
  • 1-2 tsk soðvatn eða móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk

Aðferð

  1. Afhýðið graskerið og fræhreinsið. Skerið í bita.
  2. Gufusjóðið graskerið í um 15-20 mínútur eða þangað til það er orðið mjúkt.
  3. Notið töfrasprota til að mauka graskerið en einnig má nota matvinnsluvél eða blandara. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu.
  4. Ef maukið er þykkt eða stíft má bæta svolitlu af soðvatninu út í og mauka áfram.
  5. Bætið olíu og mjólk saman við og hrærið vel.
     

Gott að hafa í huga

  • Fyrir eldri börnin er upplagt að blanda soðnum fiski (eða kjöti) saman við maukið.
  • Maukið má frysta en athugið að það verður ekki fallegt á litinn.
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!
     

Ummæli um uppskriftina

gestur
27. mar. 2012

Sæl og takk fyrir þessa frábæru síðu :o) Er búin að nota uppskriftirnar þínar mikið.
Mig langar að benda þér á að spinat er ekki æskilegt fyrir börn yngri en eins árs. Þú getur lesið um það hér:
http://www2.lydheilsustod.is/media/manneldi/utgefid//Dagforeldrar_30.6.0...

sigrun
27. mar. 2012

Takk fyrir þetta. Það eru dálítið skiptar skoðanir varðandi spínatið og flestir læknar vilja meina að magnið af nítrati sé það lítið (innan við 0%) að ekki taki því að hugsa um það. Ég held að svo lengi sem börn fái ekki spínat of oft eða í miklu magni (t.d. ekki oftar en 1 x í viku og þá innan við nokkur grömm), sé það í lagi. Sjá t.d. hér: http://www.superbabyfood.com/moms-want-to-know-about%E2%80%A6feeding-spi...

gestur
23. maí. 2017

Sæl og takk fyrir frábæra síðu.
Nú er ég að mauka á fullu. Hvar fannst þér best að versla inn lífrænt?

sigrun
23. maí. 2017

Í London ;) En annars er oft ágætt úrval í Frú Laugu, eða í lífrænu deildum stærri matvöruverslana, í Heilsuhúsinu og víðar.