júlí 2009
Bjart er yfir Íslandi, blikar vonarstjarna....
Hallgrímskirkja, eða þeir sem stjórna lagalistanum í henni, voru að spila jólalög í gærdag. Ég var því enn þá með jólalög á heilanum þegar ég vaknaði í morgun.
Viðutan viðundur
Ég get verið SVO utan við mig.....Eins og til dæmis í morgun þegar ég fór á hlaupabrettið í ræktinni (ok ég hleyp reyndar ekki frekar en fyrri daginn út af hnénu en ég geng rösklega).
Afsakið hlé!!
Vefurinn lá niðri í dag vegna þess að við vorum að skipta um hýsingaraðila (þar sem vefurinn er geymdur úti í heimi).
Uppfærslur
Bara að láta ykkur vita að það gæti verið að vefurinn sé svolítið upp og niður (þ.e. liggi niðri öðru hvoru) því það er vandamál með DNS þjóna hér á landi (auðvitað bara hér á landi) a.m.k.
Hné- og eyrnasellerí
Það er langt síðan ég hef bloggað um hné og kjálka enda örugglega allir komnir með upp í kok af sjúkrasögum. Svona til minnis fyrir mig þá er núna rúmlega ár síðan ég fór í aðgerðirnar tvær.