Ég þarf ekki lengur...
- ...að krossa fingur og vona að tölvan fari í gang á morgnana (hver dagur er óvæntur sigur..kveikir hún á sér, kveikir hún ekki á sér?)
- … að vera pirruð yfir því að geta ekki horft á video (hún getur bara alls ekki sýnt þau)
- … að naga neglurnar ef ég óvart kveiki á videoi (því það þýðir endurræsing og þá er aftur að krossa fingurna og vona að hún fari í gang)
- … að ákveða að morgni hvort ég ætla nota vafra EÐA opna Powerpoint (ekki hægt að opna bæði forritin í einu)
- … að bíða í a.m.k. 3 mínútur frá því ég opna vafra þangað til hann birtist (er svo lengi)
- … að vera leið yfir því að geta ekki unnið ljósmyndir úr nýju myndavélinni (höndlar þær ekki)
- … að reyna að finna takkana sem dottnir eru af eða reyna að festa þá sem eru lausir (sem betur fer kann ég fingrasetningu því annars væri ég illa stödd)
- … að hafa áhyggjur af því að horfa allt í einu á svartan skjá (því ég vogaði mér að opna Facebook)
- … að ákveða a.m.k. 30 mínútum áður en ég hætti í tölvunni hvenær ég ætla að slökkva á henni (því það tekur svo langan tíma)
- … að vera viss um að það sé þyrla að lenda fyrir utan gluggann (vegna hávaðans í henni)
- … að reyna að fela tölvuna ef koma gestir (því ég skammast mín of mikið fyrir hana)
- … að taka æðiskast þegar ég er að vinna og er að skila af mér verkefnum og á síðasta snúningi (ég get orðið galin)
- … að taka afrit af vinnu gögnum hverjar 5 mínútur (því harði diskurinn hlýtur að vera að hrynja)
- … að vera viss um að ef innbrotsþjófar ætluðu að grípa tölvuna að þeir myndu lyppast niður úr hlátri (og skil það mjög vel)

Ummæli
03. jún. 2010
svei mér þá, ég held ég kaupi rautt eða hvítt og skáli hérna á eftir! ... það var sko ALVEG kominn tími á þetta!
til hamingju með nýju tölvuna, bíð spennt eftir pósti ;-)
03. jún. 2010
til hamingju með þa nyju en farðu inna ruv og skoðaðu kastljosið í gær og miðlaðu þvi til vina erlendis. bless
03. jún. 2010
Til hamingju með nýja makkann. Welcome to the world of one button mice!
03. jún. 2010
Kristinn.....ég keypti nýja tölvu...ég tapaði ekki vitinu :) Það fylgdi með mús með þremur hnöppum og hún er ekki einu sinni kölluð Mighty eitt né neitt (fyrir það undur að hafa þrjá takka)....hún er bara venjuleg mús sjáðu til.
Lísa skál í botn!
04. jún. 2010
Jiiiiii ertu með makka ?????? Halelúja til lukku ! :D
04. jún. 2010
Nei nei nei Hrund ertu brjáluð!!!!!!!!!!! ALDREI MAKKA!!!!!!!!!!!!!!!!!!! :)
09. jún. 2010
Til lukku. Ég þekki reyndar einn sem var brotist inn hjá og ýmislegt var gripið á ferð þjófanna gegnum húsið, m.a. fartölvan. En - hún var nú ekki merkilegri en svo að þeir hentu henni frá sér í garðinum ... og ekki af því löggan væri að koma !!
Njóttu þeirrar nýju - meðan við mengum heiminn með kolabrennslugræjunni okkar !!
09. jún. 2010
... já og ps. ræsing á minni er 2ja bleyju aðgerð - drengirnir geta báðir gert #2 og fengið hreinan bossa á meðan !!!
Það sem enn verra er - hún neitar að opna síðu litlu frænku okkar !!
10. jún. 2010
Jiiii Anna Stína ef það væri brotist inn til ykkar myndu þjófarnir líklega hlægja sig í keng...og ekki geta stolið neinu! Ha ha 2ja bleiu aðgerð :)
Hmmm síðan hennar Emblu (og ykkar reyndar líka) var eitthvað rosalega slow í gær en er komin í lag held ég í dag.
10. jún. 2010
Þetta er nú móðgandi .... þeir gætu kannski fundið eitthvað annað en tölvu ... grjónapott kannski ;-)
Skrifa ný ummæli