Africa here we come!

Jæja þá er næsta stopp London og svo er það áleiðis til Nairobi. Við komum til með að flakka svolítið um Kenya og ég mun skrifa hér inn fréttir ef ég mögulega get. Ég er mjög spennt því þetta verður svolítið öðruvísi ferð en venjulega. Við munum gista í heimahúsi hjá local fólki í einhverja daga, fá heimatilbúinn  mat (og ég ætla að reyna að læra eitthvað í kenyskri matargerð í leiðinni), við ætlum að búa til sushi við strönd Indlandshafs og nota nýveiddan túnfisk (ekki tegund í útrýmingarhættu) og við munum gista hjá local vinafólki sem á hótel sem verður líklega ekki í notkun á meðan við erum þar. Við ætlum líka að heimsækja kvennaþorp, munaðarleysingjaheimili og kíkja í heimsókn hjá Samburu ættbálkinum. Þetta verður svolítið heimilislegt, rólegt og vonandi þægilegt.

Litla skrípið er búið að fá mango, banana, avocado og papaya ásamt hrís- og hirsigrautum í tonnatali og er að sögn bróður míns eins og selur. Hún hefur því góðan forða til að vinna úr þarna suður frá.

Held að við séum við öllu búin! Africa, here we come!!!!

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter  

Ummæli

Rakel
23. mar. 2010

Góða ferð:) Hljómar eins og þið eigið stórkostlegt ævintýri fyrir höndum!

Melkorka
23. mar. 2010

já var það ekki... ekkert látið stoppa draumana. Þetta líst mér á! Þetta er mjög hvetjandi. Þetta er sum sé bara spurning um að vita hvað maður vill og finna lausnir, til að láta það ganga eftir. Gangi ykkur vel!

hrundski
24. mar. 2010

Æði ! Góða ferð og bið að heilsa í London :)

Sólveig S. Finnsdóttir
24. mar. 2010

Góða ferð og ég bið að heilsa þeim sem ég þekki í Afiriku( það eru þó nokkrir ) farið bara varlega bless M

sigga
26. mar. 2010

Njótið ferðarinnar, ég kem til með að fylgjast með blogginu þínu núna, hefur dreymt um að ferðast til Afríku og ætla að láta drauminn rætast einn daginn.

Elisabet
26. mar. 2010

awwww eigið yndislegan tíma elsku öll. Veit að þetta verður ekkert mál hjá skrímslinu,,, það er heldur ekkert mál að vera þarna.... njótið í tætlur. og ef þið ákveðið að fara yfir til uganda þá redda ég gistingu,,,,,,,,,,,,,

Skrifa ný ummæli

Vinsamlegast athugið að reiti merkta með * þarf að fylla út.
 
Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
Þessi spurning hér að neðan er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.
Vinsamlegast leggðu saman tölurnar og skrifaðu niðurstöðurnar. T.d. fyrir einn plús þrír, skaltu skrifa 4.
tíu plús níu eru