Bjart er yfir Íslandi, blikar vonarstjarna....
Hallgrímskirkja, eða þeir sem stjórna lagalistanum í henni, voru að spila jólalög í gærdag. Ég var því enn þá með jólalög á heilanum þegar ég vaknaði í morgun. Í tilefni af því ákvað ég að birta fyrirsagnirnar sem voru á MBL kl 9.00 í morgun við undirspil (í hausnum á mér....... en þið getið raulað Bjart er yfir Betlehem ef þið viljið):
- N1 hækkar bensínverð
- Gjaldeyrisbraskarar græða
- „Það er ekkert að fara að breytast"
- Undirbúa lögsókn gegn Íslandi
- 360 sagt upp í hópuppsögnum
Já... það er aldeilis upplífgandi að vakna á mánudagsmorgni við þessa endalausa jákvæðni í fjölmiðlum!!!!!