Ógeðsmatur

30.000 hitaeininga samlokan
Jóhannes sýndi mér þessa síðu með óhollum mat í gær og ég var orðlaus. Ég hef aldrei....á ævinni.....séð jafn mikið safn af óhollum mat. Það ótrúlegasta var....ég gat ekki hætt að skoða, þetta var algjörlega morbid fascination út í gegn einhvers konar sjúklegur áhugi á viðfangsefninu þó það væri svona viðbjóðslegt. Ég skoðaði hverja einustu mynd....og trúði ekki mínum eigin augum. Kannski af því að mataræðið sem þarna um ræðir er svo langt, langt frá því sem ég þekki eða myndi tileinka mér. Hér er meðal annars boðið upp á 30.000 hitaeininga samloku (sjá mynd), hamborgara með hamborgara inn í, allt djúpsteikt sem hægt er að djúpsteikja (m.a. djúpsteikt quacamole????? og djúpsteikt kók og djúpsteiktir hamborgarar og meira að segja blóðmör) og beikon...fullt af beikoni, líka djúpsteiktu. Flest af þessu sýnist mér koma af skyndibitastöðum (og frá heimahúsum) í Bandaríkjunum en einnig eru sökudólgar frá Bretlandi. Það er líka ýmislegt ógeðfellt eins og kjöt með súkkulaði (þá er ég ekki að tala um mexikanskar mole súkkulaðisósur eða álíka...nei við erum að tala um eitthvað sætt og sóðalegt eins og bakon dýft í súkkulaði). Svo eru líka t.d. nammipizzur sem eru venjulegar pizzur en með sælgæti ofan á..og miklu sælgæti. Svo er líka alls konar vitleysa eins og mjólkurhristingur með barbeque sósu, pylsukleinuhringur með ostasósu og súkkulaðibráð og fleira....

Ég held að ég geti sagt að þetta sé ekki fyrir viðkvæma he he eða þá sem verður auðveldlega flökurt af ógeðslegum mat. Það er líka alveg á hreinu að vefurinn ber nafn með rentu.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Ummæli

Lisa Hjalt
05. apr. 2009

I feel violated!

ÓGEÐ!

Eygló frænka
05. apr. 2009

Þetta er það VIÐBJÓÐSLEGASTA sem ég ef skoða á internetinu ever. OOOOOJ.

CafeSigrun.com
06. apr. 2009

Ha ha Lísa og Eygló...ég er alveg sammála...Þetta er ÓGEEEEEEEEÐ.

Jóhanna
06. apr. 2009

Mér var nú bara flökurt að lesa þessa færslu. Legg ekki í að skoða myndirnar :S

barbietec
09. apr. 2009

sko ég er rosalega mikið fyrir óhollan mat en AUJ hvað þetta er ógirnilegt!