Snilldarkokkurinn smái

Við skemmtum okkur konunglega ég og Jóhannes yfir morgunmatnum í morgun við að horfa á þennan snilldarkokk. Það munaði engu að við yrðum sein í vinnuna því við vorum alveg límd við þennan frábæra matreiðslumann. Hann útbýr alls kyns mat eins og spaghettisósu, smákökur og fleira. Hann er ekki hár í loftinu en geislar af sjálfsöruggi (takið eftir því þegar hann ætlar að segja sögu um eldamennskuna sem og þegar hann segir að best sé að versla allt local. Brilliant). Hann er ekki að flýta sér að hlutunum, hann sleikir fingurna, hann er líka klaufi og er ekki alltaf viss um hvað hann á að setja næst en þetta verður enn þá fyndnara fyrir vikið.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Ummæli

Lisa Hjalt
08. jan. 2009

Var að horfa á þetta með börnunum og þessi drengur er náttúrlega bara frábær. Þetta var alveg kjörið fyrir svefninn í staðinn fyrir lestur ;)

Að mínu mati þá var fullmikil sykurgleði þarna undir lokin. Við hér á CafeSigrun erum ekki vön svona takteringum!

Takk takk, við ætlum að horfa á annan þátt á morgun.

CafeSigrun.com
08. jan. 2009

Hann er snillingur drengurinn...maður verður bara að líta undan þegar olían og sykurinn fara í­ skálina :) Búin að sjá fyrsta þáttinn? Ég sprakk...þegar hann sagði "I have too much time to talk" :)

Elva
09. jan. 2009

Æðislegur kokkur, mér fannst best þegar hann sagði brúnaþungur, 'these citrus boys are not easy to make' og klóraði sér í höfðinu yfir vandræðunum.

Gústi
10. jan. 2009

Nú mega Jamie Oliver og Nigela fara að gæta sín.

CafeSigrun.com
10. jan. 2009

Satt segirðu Gústi

Skrifa ný ummæli

Vinsamlegast athugið að reiti merkta með * þarf að fylla út.
 
Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
Þessi spurning hér að neðan er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.
Vinsamlegast leggðu saman tölurnar og skrifaðu niðurstöðurnar. T.d. fyrir einn plús þrír, skaltu skrifa 4.
þrír plús tólf eru