Ódýra uppskrift vikunnar #4: Kjúklingabaunasúpa

Kjúklingabaunasúpa
Hollustueiginleikar: Kjúklingabaunir innihalda trefjar sem geta lækkað kólesterólið (eins og flestar baunir reyndar). Trefjarík fæða stuðlar líka að því blóðsykurinn haldist jafn. Kjúklingabaunir innihalda einnig járn og Manganese er mikilvægt fyrir ensímin sem við notum til orkuframleiðslu og er einnig mikilvægt fyrir varnir líkamans þ.e. í formi andoxunarefna. Kjúklingabaunir eru sérlega góðar fyrir grænmetisætur vegna járnsins sem og próteinsins sem þær innihalda. Kjúklingabaunir innihalda einnig fólinsýrur sem eru sérlega mikilvægar fyrir vöxt fóstra hjá ófrískum konum. Fólinsýrur eru einnig góðar fyrir húðina sem og framleiðslu á rauðum blóðkornum. Fólinsýrur eru einnig mikilvægar fyrir heilbrigðar taugar og geta hindrað hrörnun í heila eins og t.d. Alzheimers. Ef þið eruð þreytt, pirruð, þung í lund, gleymin, sofið illa, þreytt í vöðvum þá er líklega að ykkur vanti fólinsýrur eða eruð orðin leið á kreppunni...annað hvort he he. Blaðlaukur og hvítlaukur eru hollir fyrir okkur líka, innihalda t.d. C vítamín, andoxunarefni, trefjar o.fl.....
Kjúklingabaunasúpa er alveg hræðilega ódýr og góð súpa og frábær bæði fyrir þá sem vilja einfaldan kvöldmat og t.d. námsmenn sem vilja eitthvað hollt, seðjandi og sérlega ódýrt. upplagt er að baka brauð með súpunni. Það er hagkvæmast að kaupa kjúklingabaunir í poka og leggja í bleyti í 24 tíma en annars má kaupa í dós. Yfirleitt eru kjúklingabaunir ekki með neinum viðbættum aukaefnum (meira að segja þessar ódýrustu í dós) en geta innihaldið svolítið salt.
Fyrir 2
- 2 blaðlaukar, skornir í helming, (á lengdina), skolaðir og saxaðir smátt
- 1 dós ósaltaðar, niðursoðnar kjúklingabaunir (þyngd u.þ.b. 400 gr með vatninu, hellið vatninu af)
- 2-3 stórir hvítlauksgeirar
- 1-2 gerlausir grænmetisteningar t.d. frá Rapunzel
- 600-800 ml sjóðandi vatn (magn fer eftir því hvað maður vill hafa hana þykka, mér finnst hún betri frekar þunn)
- 1 stór lúka nýrifinn parmesanostur, ég nota Vegetarian útgáfu en má nota bara venjulegan parmesanost (má sleppa, mér finnst hún líka rosa góð án parmesan)
- 1 msk kókosfeiti
- Smávegis svartur pipar
- Smávegis salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Aðferð:
- Blaðlaukurinn er steiktur við lágan hita í kókosfeiti eða ólífuolíu ásamt hvítlauknum og hálfum grænmetisteningi þangað til hann er orðinn mjúkur.
- Til að losa hýðið af kjúklingabaunum er gott að leggja þær í smástund í vatn og nudda þær varlega með fingrunum. Við það losnar hýðið og flýtur á yfirborðið. Það þarf ekki að gera þetta en er samt mjög gott, súpan verður betri svoleiðis. Ekki hugsa mikið um notaðar augnlinsur meðan þið gerið þetta, maður gæti misst matarlystina ha ha!
- Baununum bætt út í og þær hitaðar með í nokkrar mínútur.
- U.þ.b. 1/3 af grænmitissoðinu (þ.e. teningurinn og 1/3 af vatninu) bætt við og leyft að malla í pottinum í 15 mín.
- Þetta er maukað í matvinnsluvél eða með töfrasprota, gott að skilja smá eftir til að bíta í þ.e. mauka ekki í klessu.
- Bætið restinni af vatninu við og leyfið þessu að malla að suðupunkti.
- Saltið og piprið. Það má alveg setja slatta af pipar.
- Bætið parmesanostinum við, það má líka alveg bera hann fram í sér skál.
- Það má vel nota 4-5 vorlauka í stað blaðlauksins. Notið allan vorlaukinn nema hvíta endann, hann á að skera af. Saxið svo blöðin fínt.
- Það er ógurlega gott að nota sveppi í súpuna, helst ferska Shitake sveppi. Saxið 4 sveppi og steikið þá með lauknum.
- Gott er að bera súpuna fram með nýbökuðu brauði. Einnig má rista spelt- eða heilhveitipítubrauð og brjóta svo í bita til að dýfa ofan í (athugið að pítubrauð inniheldur ger).

Ummæli
01. des. 2008
Gerði einmitt tvöfalda uppskrift af þessari í gær handa fjölskyldunni og er það ekki í fyrsta sinn. Börnin elska hana. Ég þarf eiginlega að ráða þjón sem sér bara um það að rífa meiri parmesan ost út á diskana þeirra því þau vilja meira og meira af honum (nýsköpun í kreppunni?!!!).
Sveitabrauðið þitt er frábært með þessari.
01. des. 2008
He he..Mr. Parmesan er frábær :)
Skrifa ný ummæli