Ódýra uppskrift vikunnar #1: Túnfiskpastaréttur
Túnfiskspastaréttur
Fyrir 2-3
Hollustueiginleikar:
Tómatar eru fullir af C vítamíni sem og A (mikilvægt fyrir húðina okkar og nætursjón) og K vítamínum (mikilvægt gegn beinþynningu). Einnig innihalda tómatar E vítamín (mikilvægt fyrir húðina) og zinc. Þeir innihalda einnig hið sterka andoxunarefni lycopene sem hafa stóru hlutverki að gegna við að sporna gegn myndun krabbameinsfruma. Zinc er sérlega mikilvægt fyrir frjósemi, sérstaklega karlmanna. Niðursoðnir tómatar eru bæði hollir og ódýrir (sérstaklega ef þeir eru lífrænt ræktaðir) og eru almennt hollari heldur en ferskir tómatar (vissuð þið það?). Túnfiskur inniheldur omega 3 fitusýrur sem eru nauðsynlegar fyrir okkur en ekki auðvelt að fá úr fæðu. Reyndar er það ferskur túnfiskur sem inniheldur meira af fitusýrunum en niðursoðinn. Einnig er túnfiskur próteinríkur og fitusnauður. Speltið er svo mun hollara en hvíta hveitið því það er unnið á allt annan hátt en venjulegt hveiti og er ekki sprautað með þeim eiturefnum sem hveitið þarf, inniheldur fleiri vítamín og er próteinríkara. Ólífur innihalda nokkuð af járni og eru auðvitað góðar fyrir hjartað og æðarkerfið því þær innihalda jú einómettaðar fitusýrur. Hvítlaukur er líka dæmalaust hollur fyrir okkur (hefur hreinsandi eiginleika og B6 og C vítamín að auki). Innihald:
- 400 gr túnfiskur í vatni. Ég nota þann sem er frá Euro Shopper því hann er Dolphin Friendly. Hellið vatninu af
- 200 gr spelt penne pasta (lítil rör) eða skrúfur. Einnig má nota heilhveitirör
- 400 ml krukka af pastasósu (með tómötum sem aðaluppistöðu, sveppum, lauk og hvítlauk. Aðalatriðið er að hún sé fitusnauð og að sé ekki sykur í henni og að engin skrýtin aukaefni séu í henni eins og MSG (Monosodium Glutamate eða einhver E-600 efni). Kaupið helst lífrænt framleiddar sósur.
- 400 gr tómatar, vel þroskaðir, saxaðir, (má nota 400 gr dós af söxuðum niðursoðnum tómötum)
- 2 msk tómatmauk (pureé)
- 3 sveppir sneiddir fínt
- 1/2-1 dl svartar ólífur í sneiðum
- 2 hvítlauksgeirar, pressaðir eða saxaðir (má sleppa ef hvítlaukur er í sósunni)
- 1 msk svartur pipar
- 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) (má sleppa ef salt er í túnfiskinum)
- 1 tsk kókosfeiti
Aðferð:
- Byrjið á því að sjóða pastað samkvæmt leiðbeiningum utan á pakka.
- Látið renna af pastanu, kælið undir kaldri bunu í nokkrar sekúndur og geymið.
- Hitið smá kókosfeiti og vatn í stórum potti og hitið sveppina og ólífurnar.
- Kryddið með salti og smá pipar.
- Hellið sósunni saman við og hitið þangað til hún er orðin vel heit.
- Bætið túnfisknum út í og hrærið varlega þannig að séu enn þá bitar í túnfisknum þ.e. passið að sundurtæta ekki túnfiskinn.
- Bætið pastanu saman við og hitið vel.
- Berið fram með ferskum parmesanosti og kannski Ólífubrauði með pestó og parmesan eða Snittubrauði.
Annað:
- Að sjálfsögðu er hægt að nota sína eigin pastasósu ef maður hefur nægan tíma. Aðaluppistaðan ætti að vera niðursoðnir tómatar, tómatpurée, laukur, hvítlaukur, basil og sveppir og jafnvel kúrbítur (enska: courgette, zucchini).
- Það er upplagt að gera svolítið magn í einu, borða daginn eftir í kvöldmat og taka með sér í nestið líka því rétturinn er líka góður kaldur.
Ummæli
11. nóv. 2008
Þú sérð svo vel um okkur hérna á síðunni þinni.
Svo eru myndirnar þínar svo sætar að mig langar bara til þess að banka upp á og fá að borða í þínu eldhúsi! Er ég sú eina sem líður þannig? Held ekki! :-)
11. nóv. 2008
Æ takk fyrir kvittið Lísa :) Var einmitt að sjá að möndlukúlurnar eru uppskrift dagsins í dag og varð hugsað til þín :)
Og þú ert velkomin í mat ;)
12. nóv. 2008
Neihei Lísa þú ert sko ekki sú eina :-))
12. nóv. 2008
Spurning um að mynda grúppu hérna á blogginu og heimta það að við notendur vefsins mætum eins og einu sinni í mánuði í eldhús Sigrúnar í veislu :)
12. nóv. 2008
Lísa....don't put ideas in their head ha ha
13. nóv. 2008
Heyr heyr,, líst vel á þetta! settu mig á listann,,