Hvað eigum við að gera næst?

Jæja þá er óhollustusamkeppnin búin og mér finnst eitthvað svo tómlegt að hafa ekkert á sunnudögum að ég ákvað að taka upp á nýjung. Ég ætla að kynna eina uppskrift í hverri viku. Uppskriftin á sem sagt að vera ódýr, holl og vonandi bragðgóð. Ég mun segja ykkur hvers vegna innihaldið í uppskriftinn er gott fyrir ykkur (vítamín o.fl.) og kannski eitthvað fleira varðandi hráefnið eða samsetningu. Ykkur er svo velkomið að kommenta á uppskriftina, koma með ykkar hugmyndir og tillögur ef þið hafið prófað uppskriftina áður o.s.frv. Ég ætla að bjóða upp á þessa nýjung næstu 10 vikurnar...(hver veit...kannski verður kreppan liðin hjá hmmmmm) :)

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Ummæli

Elva
11. nóv. 2008

Frábært framtak hjá þér Sigrún mín, þú ert að leggja þitt lóð á vogarskálarnar með þessu :-)

Sigrún
12. nóv. 2008

Takk Elva mín :)