Óhollustusamkeppni notenda CafeSigrun: Þátttakandi #10

Patak‘s Spicy Chilli Dip

Spicy Chilli Dip

Tillaga frá: Láru

Þessi sósa (krydduð chilli sósa/ídýfa) kom mér bara nokkuð á óvart. Ég bjóst við litarefnum, hrúgu af sykri og skrýtnum efnum en það eina sem ég get í raun sett út á sósuna er að í henni eru bragðefni (því miður ekki tekin fram hvaða bragðefni) og það er alltaf til vansa. Fyrsta sætið í innihaldslýsingunni verma tómatar og það veit alltaf á gott þegar svo er þ.e. að fyrsta sætið vermi ekki t.d. eitthvað efni með furðulegu nafni sem búið er til t.d. á tilraunastofu. Reyndar er notuð umbreytt sterkja (erfðabreytur maís) og það er aldrei gott að mínu mati, ég skil ekki svoleiðis framleiðslu. Annar galli er að það eru 7 gr af sykri í uppskriftinni en það er næstum því 10% af innihaldinu í 100 gr. Ég myndi gjarnan búa svona mauk til sjálf með sama hráefni og talið er upp þ.e. tómatar, laukur, tómatmauk, græn paprika, rauð paprika, jalapeno pipar, hvítlaukur, coriander og ég myndi setja agavesíróp í staðinn fyrir sykur. Mjög svipuð uppskrift og að salsa sósunni sem er á vefnum mínum nema sú er aðeins minna krydduð en þessi. Lára mín þú mátt borða þessa sósu með næstum því góðri samvisku en ekki alveg hreinni :)

Innihaldslýsing: Tomato (33%), Water, Onion (11%), Concentrated Tomato Purée, Red Peppers & Green Peppers (8%), Sugar, Sliced Red Chilli (4%), Vegetable Oil, Jalapeno Peppers (2%), Salt, White Wine Vinegar, Modified Maize Starch, Spices (Contains Mustard), Coriander Leaf, Garlic, Flavouring.

Glúteinlaust: Mjólkurlaust: Hnetulaust: Já en með varúðarorðum um hnetusmit frá annarri framleiðslu

Næringargildi í 100 gr: Orka (kcal): 67 Prótein:  1,2 gr Kolvetni: 9,1 gr Þar af sykur: 7,1 gr Þar af trefjar: 0 gr Fita: 2,8 gr Þar af mettuð fita: 0,2 gr Þar af einómettuð: ekki tekið fram Þar af fjölómettuð: ekki tekið fram Transfita: ekki tekið fram

Óhollustueinkunn: 5,5 (10 er hollast)

Úrslitin úr óhollustamkeppni notenda CafeSigrun verða svo birt í næstu viku :)

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Ummæli

Elisabet
28. okt. 2008

úúú spennandiiii

Lára
03. nóv. 2008

Jej.. þá er ákveðið hvað er í matinn í kvöld. Takk... reyni samt bráðum að gera svona sjálf...

Skrifa ný ummæli

Vinsamlegast athugið að reiti merkta með * þarf að fylla út.
 
Innihald þessa svæðis verður ekki sýnilegt almenningi.
Þessi spurning hér að neðan er til að varna því að spamvélar geti sett inn sjálfvirkar færslur.
Vinsamlegast leggðu saman tölurnar og skrifaðu niðurstöðurnar. T.d. fyrir einn plús þrír, skaltu skrifa 4.
einn plús tveir eru