Óhollustusamkeppni notenda CafeSigrun: Þátttakandi #5
Slim Fast Caramel
Tillaga frá: Ingibjörgu Lárusdóttur
Það er mikill kostur ef maður er með gráðu í efnafræði....það myndi hjálpa manni að lesa utan á umbúðirnar á þessu „súkkulaði. Bara nafnið...Slim-Fast ætti að kveikja á aðvörunarbjöllum í höfðinu. Það er ekkert súkkulaði sem er „megrandi og fyrir utan það ætti orðið slim-eitthvað þ.e. „megrunar-eitthvað að vera algjörlega bannað. Mér finnst heldur ekkert Slim....við 382 hitaeiningar, 12 grömm af fitu (þar af meira en helmingurinn mettuð fita sem sest beint inn á æðarnar) og 52 grömm af sykri..... Þó að þessi stöng sé létt ætti maður ekki að láta gabbast og einnig inniheldur hún bragðefni og litarefni. Þá er moli af dökku, lífrænt framleiddu súkkulaði mun betri kostur.
Innihaldslýsing: Caramel (30%) (Glucose Syrup, Sugar, Bulking agent (Polydextrose), Skimmed Milk, Vegetable Oil, Salt, Flavourings, Emulsifier (Soya Lecithin)), Glucose Syrup, Milk Chocolate (21%) (Sugar, Cocoa Butter, Skimmed Milk Powder, Cocoa Mass, Lactose, Whey Powder, Milk Fat. Fat Reduced Cocoa Powder, Emulsifiers (Soya Lecithin, Polyglycerol Polyricionleate), Flavourings), Sugar, Water, Vegetable Oil, Bulking Agent (Polydextrose), Fat Reduced Cocoa Powder, Egg White, Salt, Colour (Plain Caramel), Flavourings.
Glúteinlaust: Já Mjólkurlaust: Nei Hnetulaust: Já (en með aðvörun frá framleiðanda um smit frá öðrum vörum)
Næringargildi í 100 gr: Orka (kcal): 382 Prótein: 3,4 gr Kolvetni: 69,6 gr Þar af sykur: 52,3 gr Þar af sterkja: ekki tekið fram Þar af trefjar: 1,2 gr Fita: 12,4 gr Þar af mettuð fita: 7,1 gr Þar af einómettuð: 1,2 gr Þar af fjölómettuð: ekki tekið fram Transfita: ekki tekið fram
Óhollustueinkunn: 2,0 (10 er hollast)
Ummæli
22. sep. 2008
Jáhá, grunaði ekki Gvend!
24. sep. 2008
það er álíka hollt að kaupa snickers og þetta , þó þetta heiti "slim " :Þ
28. sep. 2008
Þetta er í raun alveg venjulegt súkkulaðistykki, bara miklu léttara. mýmörg dæmi um slík megrunarsúkkulaði! Þá er væntanlega ódýrara að kaupa bara eitt bounty og deila tveir saman!