Nýr vefur Afríku Ævintýraferða í loftið
[caption id="attachment_767" align="alignnone" width="400" caption=" "][/caption]
Jæja þá er komið að því loksins. Við erum búin að vinna að því síðustu mánuði (svona í lausum tíma) við að gera nýjan vef Afríku Ævintýraferða. Ég sá mest megnis um efnið og efnistök, vann og valdi allar myndir á vefinn og skrifaði allan texta. Jóhannes sá svo um að kóða vefinn. Til gamans má geta að hver einasta mynd sem þið sjáið á vefnum er tekin af mér (aðallega...en nokkrar af Jóhannesi (hann á flestar Kilimanjaro myndirnar) :)
Á vefnum má m.a. finna fróðleik um Austur Afríku og þau lönd sem við förum helst til hjá Afríku Ævintýraferðum þ.e. Kenya, Uganda, Tanzaníu og Rwanda...ásamt upplýsingum um göngur á Kilimanjaro en með Afríku Ævintýraferðum hafa farið mörg hundruð Íslendinga á topp Kilimanjaro og mörg þúsund Íslendingar til.
Svo má finna t.d. afrískar uppskriftir (af vefnum mínum), myndasöfn, myndbandsbrot (eigum eftir að bæta við myndskeiðum af górillum).
Næstu daga ætlum við að fínpússa á bak við tjöldin og erum líka með nokkrar viðbætur sem við ætlum að setja inn smátt og smátt með tímanum.
Vona að þið njótið vel og endilega látið berast!
Ummæli
02. ágú. 2008
til hamingju með þetta. síðan er algjör snilld, ekkert smá flott hjá ykkur.
Hlakka til að sjá ykkur með haustinu,
02. ágú. 2008
Til hamingju með nýju síðuna, hún er glæsileg!