Londonbrenna
Ég tók uppskriftabók úr bókahillunni í gær og í miðri bókinni var lestarmiði frá London...síðan nóvember 2003 (vorum þá búin að búa í 2 ár í London). Ég horfði á Jóhannes sem skildi alveg hvað svipurinn táknaði. Hann stakk upp á því að við myndum útbúa svona "kærastabrennu" í stofunni (eins og stelpurnar í Friends þáttunum gerðu)....nema okkar brenna væri svona "Londonbrenna"....og við myndum brenna allt sem minnti okkur á London, gamla muni, minningarbrot, myndir o.fl. Það svo sem væri allt í lagi því það er ekkert inni hjá okkur sem minnir á London þannig séð...nema kannski uppskriftabækur og jú kirkjubekkurinn, altarisborðið og kirkjustólarnir (mætti halda að við værum trúuð....sem við erum reyndar hvorugt.....við bara fórum á svona kirkjuantikmarkað og þar var ljómandi fallegt dót). Annað er blanda af afrísku dóti og "héðan og þaðan" dóti. Þetta yrði því frekar lítil brenna og ég væri ekki svo óánægð með að ÞURFA að fara í uppáhaldsbókabúðina mína í öllum heiminum "Books for Cooks" við Portabello Road í London...gæti hugsað mér leiðinlegra verk.
Þetta er auðvitað ekkert nema aumingjaskapur. Ég gæti vel keypt flugmiða til London (ef ég væri aaaaaaalveg að drepast). Mig langar það reyndar hvern dag. Svo getum við flutt líka (svo sem á stefnuskránni). Svo þegar ég er alveg að mygla þá koma svona það sem ég kalla "platdagar" á Íslandi eins og í dag þar sem það er næstum því ánægjulegt að búa hérna (þ.e. ef maður fer ekki í matvöruverslun). Sólin skín og golan er hlý. Gerist einu sinni á ári. Ég er svo sem ekki að kvarta yfir öðru en verði og verðlagi því ég veit að það er margt gott við Ísland (t.d. náttúran þ.e. svo lengi sem hún er ekki eyðilögð með byggingum og álverum), heilbrigðiskerfið (þ.e. þegar maður lendir ekki í svona þjónustu eins og ég lenti í á Landspítalanum...var ekkert skárra en í London) og eflaust er ágætt að eiga krakka hérna (hef þó heyrt sannfærandi rök frá barnafólki sem býr í London um að það sé miklu betra en að búa á Íslandi...sel það ekki dýrara en ég keypti það). Varðandi "hreina loftið" okkar þá er það bábilja og það vita þeir sem hafa séð mengunarskýið yfir Reykjavíkurborg á veturna. Við erum bara heppin að það er alltaf rok hérna því mengunin blæs í burtu. Við eigum þó hreint vatn og það er eitthvað sem er reyndar algjörlega stórkostlegt.
Ég er búin að vera í "verðþunglyndi" í heila viku. Ég nefnilega fór í búðina (Hagkaup) síðasta laugardag og gekk um búðina í þunglyndis- og pirringskasti. Flest hafði hækkað um 30-100 krónur frá síðustu verslunarferð (vikunni áður), án útskýringar (ok krónan veik bla bla). Það fauk verulega í mig. Sérstaklega af því þegar ég kom heim fór ég á vef Waitrose (sem er með betri matvörubúðum í London og er ferskari og flottari en Hagkaup (þar versluðum við alltaf)) og ég "verslaði í matinn". Ég setti allt í körfuna sem ég set í körfuna hérna heima og meira til (t.d. hamingjusaman kjúkling, cashewhnetur, möndlur, hafrakex, blóðappelsínusafa frá Tropicana og þess háttar munaðarvörur) og takið eftir að ÖLL matvaran var lífrænt framleitt og lífrænt ræktuð (hvert einasta stykki). Verðið fór ekki upp fyrir 10 þúsund krónur íslenskar. Þrátt fyrir að gengið sé í hæstu hæðum (þ.e. krónan að kúka á sig). Það væri næstum því ódýrara fyrir okkur að fljúga til London og gera matarinnkaupin þar fyrir mánuðinn og koma svo heim með góssið. Eða svona hér um bil.
Stundum stend ég mig að því að ætla að fara í göngutúr um London (eins og í dag) þá er ég búin að hugsa svo mikið um borgina og hvað ég sakna hennar og er með hana í huganum þegar ég er að fara út um dyrnar. Ég ELSKA að labba um London, hvert einasta skref er ánægjuskref, hver einasta svipmynd upplifun; fólkið, byggingarnar, kaffihúsin, heilsubúðirnar, veitingastaðirnir, garðarnir fallegu. Mig langaði svo óskaplega að labba um Fitzrovia, hverfið okkar, í dag og setjast svo á kaffihús með Jóhannes, fara svo í heilsubúðina, kaupa eitthvað gott og setjast í fallegan garð (þetta gerðum við í hverri viku)..mig langaði það svo mikið að ég tók inn magalyfið bara til öryggis....svona ef ske kynni að það myndi slá á sársaukann....sem það gerði reyndar ekki..en maður má reyna. Ég fór samt í labbitúr og mér var meira að segja heitt (og ég var bara í bol og jakka)...það gerist aldrei...nema einu sinni á ári.
Nú hugsa margir "ok hvers vegna hættir hún ekki að röfla og fer þá bara af Skerinu". Það er einmitt stefnan en við erum ekki búin að ákveða 100% hvenær. Við vitum samt að við ætlum aftur. Það eru ákveðnar stundir sem sitja fastar í mér og ein er þegar ég kom upp úr lestarkerfinu á Oxford Street. Við bjuggum bara 5 mínútum frá stöðinni og þó að maður eigi nú að forðast götuna sjálfa eins og heitan eldinn (túristastappa dauðans) þá tók ég alltaf andköf og brosti út að eyrum í hvert skipti sem ég kom upp úr lestunum. Eftir vikudvöl á Íslandi (þegar ég fór á milli Íslands og London hvern mánuð í 2 ár) þá labbaði ég upp tröppurnar og stóð í nokkrar sekúndur bara til að taka London inn. Ég horfði á þessar stórkostlegu byggingar, ljósin, strætóana, fólkið og ég var yfirþyrmandi glöð. Get ekki sagt að ég upplifi sömu stemmningu í Keflavík hehe. Það er þó helst að ég upplifi þessa yfirþyrmandi gleði á hálendinu, í hestaferð til dæmis. Það er sama yfirþyrmandi gleðin og að vera í safaríi á sléttum Afríku, í morgunmistrinu þegar fílarnir, zebrahestarnir, ljónin og gíraffarnir hreyfa sig í takt við andardráttinn. Það er svoleiðis gleði sem ég meina..eða tilbrigði af henni.
En nú er nóg komið af röfli...Það eina sem maður getur gert er að stefna að því að nálgast það sem maður vill....ekki satt? Óþarfi að röfla í öðrum :)


Ummæli
26. júl. 2008
Sæl
Ég var í Nýju krónubúðinni í Lindum í gær og þar er risastór gangur ( stærra en í Hagkaup ) með hollustuvörum, mikið af því sömu vorur og í Hagkaup en í flestum tilfellum ódýrari en Hagkaup ( en samt þó assgoti dýr )
Einnig eru þau með eitthvað af lífrænt ræktuðu grænmeti, leit ekki alveg nogu vel á það þar sem ég var í hraðferð í gegn.
26. júl. 2008
Sæl Berglind..
Já ég veit að það er hægt að fá vörurnar ódýrari í öðrum verslunum en ég var sem sagt að bera saman verðlag í "bestu" verslun landsins og svo "bestu" verslun London því í þessum tveimur búðum verslum við alltaf. Það er þessi verðmunur á milli þessara tveggja verslana sem stingur mig svo.....Held að endi með því að ég láti senda matinn til mín frá London...örugglega ódýrara ha ha.
26. júl. 2008
Það er nú meira hvað þú getur kvalið til stelpa! Ekki gleyma því að þú ert búin að eiga sérstaklega erfitt vor og sumar þannig að það er ekki skrýtið að þú sért stúrin. Láttu þér líða betur með því að ÁKVEÐA hvenær þú ætlar næst til London, í heimsókn eða þá fyrir fullt og allt!!
26. júl. 2008
ha ha ég var einmitt farin að hugsa "hvað er gellan að gera á klakanum?" En ég veit að ykkar tími mun koma,,, London býður spennt eftir ykkur. Veit samt alveg hvað þú ert að fara, ég var einu sinni svona í sambandi við Osló,, Allt best í Norgegi, (finnst það að vísu ennþá). En hlakka til að draga andann í Keflavík eftir 5 daga, verð að viðurkenna það. var spurð í gær hvort ég myndi ekki sakna veðursins hér í Kína, sagði pent að það væri það eins sem ég myndi EKKI sakna. Hugsa fallega til þín í rútunni á milli flugvalla í London á fimmtudaginn.
26. júl. 2008
vá hvað ég skil þig með þessa "heimþrá" sem kemur upp reglulega. Nema Barcelona er mitt heim. Þá fer ég á allar síður sem gætu mögulega innihaldið ferð á hagstæðu verði. En stutt ferð endist bara... of stutt.
kv. frá cafesigrunaraðdáanda:)
26. júl. 2008
Elva: Nei svo sem ekki skrítið þó ég sé stúrin...ekki beint búin að njóta þess besta sem landið hefur upp á að bjóða.....Varðandi það hvenær/hvort/hvernig við förum þá verðum að fara að hittast í spjall fljótlega.
Elísabet: Það er hreint magnað að koma út úr flugstöð Leifs Eiríkssonar á svölu sumarkvöldi og anda að sér hreina loftinu þ.e.a.s. EF rúturnar eru ekki í gangi beint fyrir utan dyrnar...ekki beint skemmtileg auglýsing fyrir "hreina loftið okkar". Hlökkum til að hitta þig. Góða ferð heim (og p.s. ekki hugsa til mín á milli flugvalla því það eru sennilega ljótustu staðir Englands ha ha. Mátt bara hugsa til mín ef þú ferð inn til London og situr á kaffihúsi) :)
Oddný: Skil þig vel með Barcelona...væri sennilega líka með mikla Barcelona-heimþrá þangað ef ég hefði búið þar enda æææææðisleg borg. Vinkona mín bjó þar og er með mikla heimþrá öðru hvoru. Verðum að fara þangað aftur við tækifæri..hver veit nema maður prófi að búa þar í framtíðinni...he he.
27. júl. 2008
Alveg sammála þér með London - ELSKA'ana!
Og þegar ég var að lesa London-lýsinguna þína var ég strax komin í huganum út... og stóð mig að því að brosa út að eyrum við tilhugsunina :-D