Síður en svo "aðgerðarlaus"
Þá er komið að því eina ferðina enn....ég þarf að leggjast undir hníf og skæri. Jóhannes horfði á mig áhyggjufullum svip fyrir nokkrum dögum síðan þegar varð ljóst að ég þyrfti að leggjast inn í nokkra daga á spítala...Af því að ég þekki Jóhannes þá veit ég að 80% af áhyggjunum tilheyrðu vorkunn (alveg frá hjartanu) en 20% tilheyrðu "en ég verð svaaaaaanguuuuuur og hvað á ég að boooorðaaaaa" svipnum (hann kvartar auðvitað aldrei en ég er búin að þekkja hann frá því ég var 9 ára svo ég veit hvað felst í íbyggnum svipnum og munnvikjunum sem fara aðeins til hliðar við svona fréttir). Þó að Jóhannes sé 100% fær um að bjarga sér með cheerios, mjólk og rúsínur þá vil ég auðvitað að hann borði heldur staðgóða máltíð (sem er útbúin með ást og "umhú" eins og einn sem við þekkjum segir alltaf um allt sem er búið til með hjartanu). Það er nákvæmlega engin afsökun þó maður leggist inn á spítala í nokkra daga....maður þarf bara að skipuleggja aðeins fram í tímann.
Það sem ég er búin að búa til:
- Meira muesli (er að klárast og mér finnst þetta besta muesli í heimi (þó ég segi sjálf frá)...og ég panikka ef það klárast)
- Kraftaköggla (hættulega lítið eftir...svipurinn á Jóhannesi þegar staflinn minnkar er eins og á sorgmæddum hvolpi)...hann borðar nefnilega 2 á dag (eða 1 + muffins...)
- Borritos og frysta
- Guacamole og setja í ísskápinn (á til holla salsasósu í ísskápnum)
- Fullt af bananamuffinsum og frysta
- Fullt af Hawai-ananasmuffinsum og frysta
- Túnfiskssalat í nestið á morgun
- Smoothie-undirbúning (tahini, undanrennuduft og próteinduft, skyr og banani og svo frosnir ávextir sem jóhannes fær í vinnunni....alveg eðal smoothie og hrikalega hollur, fínn fyrir þá sem eru að stækka vöðvana). Maður getur nefnilega tekið með sér (og undirbúið deginum áður meira að segja) allt nema frosnu ávextina.
Sem sagt...nú hefur Jóhannes fullt af orku til að vorkenna mér og sakna mín og hugsa með einlægri ást til mín í hverjum munnbita næstu daga he he.
Svo er ég búin að taka til það nauðsynlegasta fyrir mig....ipod, bækur o.fl., o.fl. og auðvitað hollt snarl (þurrkaða ávexti og svoleiðis). "Þetta verður fróðlegt" eins og Elva vinkona mín sagði við mig í dag....Ég er alveg sammála....þetta verður mjög fróðlegt.
Heyri í ykkur fljótlega
Ummæli
02. júl. 2008
Hæ hæ
Bara að kvitta fyrir komuna ;-) Veit hvað það er leiðinlegt að fá bara örfá eða engin komment þegar maður VEIT að það er fullt af fólki sem skoðar síðuna.
Vona að aðgerðin gangi alveg ofsalega vel! :-)
Kveðja,
Jóhanna
03. júl. 2008
vona að allt gangi vel og þu fáir góðan bata. KV m
03. júl. 2008
Gangi þér vel. Læt þig vita með hneturnar um helgina vonandi ;)
03. júl. 2008
Mér finnst alltaf svo gaman að heyra þegar hjón eru svona góð hvort við annað og hamingjusöm en ekki í einhverri valdabaráttu á heimilinu.