Var að koma úr búðinni (Hagkaup) sem er ekki merkilegt. Nema ég sá eitthvað sem gladdi mig mikið (þarf ekki mikið til)...það er hægt að kaupa frosnar sojabaunir. Sojabaunir eru eitt það hollasta sem maður borðar og ég varð því reglulega, reglulega glöð. Þær innihalda hellings prótein, lækka kólesteról (sérstaklega hjá karlmönnum) og innihalda omega 3 fitusýrur ásamt því að vera trefjaríkar o.fl., o.fl. Það sem mér finnst líka svo skemmtilegt er að fyrir nokkrum mánuðum sendi ég fyrirspurn á verslunarstjóra í Hagkaup varðandi þessar galdrabaunir sem hefur verið svo erfitt að fá og sá svaraði því að hann ætlaði að kíkja á málið. Viti menn, nokkrum vikum síðar var hægt að kaupa Edamama baunir (sojabaunir). Þessar frosnu eru reyndar ekki í hýði eins og maður fær á sushistöðum en sojabaunir getur maður notað í salöt og margt fleira, nammi namm. Gæti lifað á sojabaunum. Stundum fær maður frosnar sojabaunir í hýði í Sælkerabúð Nings en svo geta liðið margir mánuðir án þess að þær fáist (sem er svolítið óþolandi). Bara svo þið vitið þá borðar maður ekki hýðið....maður hendir baununum í pott með smá salti og smávegis olíu og sýður í um 3 mínútur og borðar beint úr hýðinu.
En að öðru, nú er liðinn meira en mánuður síðan ég fór í aðgerðina og hnéð er enn þá fast í sömu stöðu sem sagt 120°. Læknirinn segir að það sé bæði eðlilegt (miðað við umfang aðgerðar) og ekki eðlilegt (miðað við að ég er dugleg að gera æfingar heima)...ég hitti hann í þar næstu viku og þá verð ég vonandi orðin góð. Það er samt mánuður síðan ég gat labbað á Kaffitár, Bankastræti og ég hef ekki farið á Laugaveginn allan þennan tíma nema til að þvera hann á leið að heima og í vinnu. Það er erfitt að labba um haltur og maður fær illt í bakið og er allur skakkur....ég hélt að þetta tæki um 10 daga (eins og síðast) áður en ég gæti a.m.k. farið í ræktina (eða sjúkraþjálfun) en mér sýnist á öllu að þetta muni taka um 2 mánuði hið minnsta. Frekar svekkjandi því sumarið átti að fara í göngur á hálendinu, hestaferð og fleira :( Svona er lífið víst og gæti verið verra.
Ummæli
15. jún. 2008
Takk kærlega fyrir þetta frábæra framtak. Sá viðtalið við þig í blaðinu og hoppaði hæð mína upp af gleði. Hef saknað þess að geta ekki leitað í svona brunn. Veit ekki hvernig þessi vefur hefur farið fram hjá mér. Gangi þér vel, ég verð tíður gestur hér hjá þér.
15. jún. 2008
Hæ Skúlína og velkomin :) Hlakka til að sjá þig sem oftast :)
21. jún. 2008
Hæ, fyrst ber að þakka fyrir frábæra síðu en svo langaði mig líka að segja þér að ég hef fengið frosnar edamame (í hýðinu) í Asíumarkaðnum á Suðurlandsbraut.
21. jún. 2008
Halló Björt og takk fyrir upplýsingarnar. Þetta er reyndar sama búðin og Nings sem ég tala um (hún hét áður Sælkerabúð Nings en heitir núna annað) en takk samt fyrir hugulsemina :)