Pródúserarnir
Jæja jæja jæja!!!! Þá er vinkona okkar hún Caroline Reid farin frá Íslandi. Þvílíkt ævintýri sem við erum búin að eiga síðustu daga! Við erum ótrúlega glöð með hversu vel tókst með allt saman frá a-ö. Það að flytja inn eitt stykki skemmtikraft er ekkert grín og kostar tíma, undirbúning og pening...að ógleymdu öllu stressinu. Þetta HEFÐI ekki getað tekist betur. Við vorum að vonast eftir um 80% nýtingu á húsinu en bjuggumst ekki við að það yrði slegist um miðana, við grátbeðin um aukamiða og að hringt yrði látlaust í leikhúsið í von um ósótta miða.
Stemmningin var frábær og Caroline sjálf og Tim umboðsmaðurinn hennar voru bæði rothissa á viðbrögðunum. Þeim fannst Íslendingar í heildina alveg meiriháttar og landið ótrúlegt. Ekki nóg með það að þau hlytu standandi lófatak í gærkvöldi. Þegar við vorum búin að ganga frá í gærkvöldi og við vorum að koma út úr leikhúsinu þá blasti við ljósadýrð himinloftanna..Norðurljósin. Tim og Caroline voru bæði orðlaus, sérstaklega Tim því hann hafði óskað sér að sjá Norðurljósin en bjóst innilega ekki við því að verða að ósk sinni og það í Reykjavík. Hann sagði að þetta væri fullkominn endir á fullkominni ferð til Íslands.
Við fórum svo með þeim skötuhjúunum og röbbuðum saman áður en að þau fóru í háttinn. Þau eru svo reglulega skemmtileg og hlý..við höfum eignast góða vini...Caroline vill endilega komast með okkur í Afríkuferð og við erum búin að lofa að taka hana með einhvern tímann.
Það er svo ekki spurning um hvort heldur hvenær Pam Ann treður upp næst á Íslandi..hún er spennt fyrir því að koma aftur og er búin að biðja um að við verðum "the producers"...sem er ótrúlega fyndið af því við erum lúðar. Við erum svo miklir lúðar því við kunnum ekki neitt í svona málum...við vissum bara að þetta myndi reddast. Til dæmis var skjávarpinn í láni frá Borgari bróður, kannan á trollíinu hennar var frá Elvu vinkonu sem og ísfatan. Það sem hún notaði ofan í ísfötunni var ekki ístöng heldur skrall sem við fundum í leikhúsinu og peningakassinn sem við notuðum frammi í afgreiðslunni var kominn frá Auðni vini okkar sem vinnur í Frjálsa fjárfestingabankanum...maður verður víst að redda sér.
Sem sagt húsfyllir á báðum sýningum og gott betur, umfjöllun í fjölmiðlum bæði sjónvarpi og blöðum og svakalega góð stemmning og hlátursköll og lófatak á sýningunum, ánægður performer og umboðsmaður og dauðþreyttir en ánægðir pródúserar....þetta tókst!
Ummæli
03. feb. 2008
Frábært að heyra hvað gekk vel.
Spurning um að bóka hana í félagsheimilið í Hveragerði þegar við erum flutt þangað... þið græjið það bara!!
Megið líka alveg redda Lee Evans heim ég yrði bara grúpppía myndi hanga fyrir utan og fá eiginhandaáritun og koss :D
07. feb. 2008
Það er svo greinilegt að það er EKKERT sem þið getið ekki gert. Til hamingju með vel lukkað ævintyri!