Ipod morðinginn

Hmmm ég vissi að U2 ipodinn minn væri bestur en vissi ekki að Jóhannes væri svona abbó he he. Jóhannes stakk honum í samband við tölvuna sína um daginn og drap hann :( Hann ætlaði að setja einhverja nýja og spennandi tónlist á ipodinn (eða svo sagði hann) en það tókst ekki betur til en svo að ipodinn gaf upp öndina og þverneitaði, þrátt fyrir ítrekaðar lífgunartilraunir að vekja hann til lífsins. Hann var sendur í gjörgæslu til Hollands og nýjustu fregnir eru þær að ég fái nýjan ipod. Nú verður Jóhannes örugglega enn þá meira abbó (þ.e. ég á eitthvað nýrra tæki en hann) og ég þarf því að passa ipodinn mjög vel svo að Jóhannes geri ekki eitthvað við hann he he. Mig langar annars svolítið í Red ipodinn en 10 dollarar af ágóða hans fara í Red verkefnið sem mér finnst afar, afar sniðugt. Ég verð samt voða glöð að fá nýjan ipod.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It