Bloggið
Afmælisbarnið
Æi það er gaman að eiga afmæli, gaman að fá afmælisgjafir og ég var að reikna að ef ég verð 108 ára (það er stefnan, að verða eldri en 107 sko) þá á ég eftir að fá um það bil 450 afmælisgjafir svona í heildina (búið að jafna út stórafmælin og svona). Ég er alveg að hlakka til. Mér er eiginlega alveg sama hvað ég fæ í afmælisgjöf, finnst bara gaman að fá pakka. Já talandi um pakka. Takk fyrir mig allir sem gáfu mér afmælisgjöf, fékk nokkrar æðislegar uppskriftabækur eins og til dæmis bók eftir Japanskan kokk sem er búin að selja 7 milljón bækur og 5 milljón tímarit í Japan. Hún er svona Martha Steward Japans (mínus fangelsisvist og skandal). Hlakka til að prófa japanskar uppskriftir, nóg borðum við að sushi! Svo fékk ég aðra bók sem heitir Feast eftir Nigellu Lawson. Namm hlakka til að prófa hana. Ég set auðvitað þær uppskriftir sem ég prófa inn á vefinn. Svo fékk ég ægilega fínan svefnpoka, dúnpoka frá North Face sem á að duga í -18 stiga frosti sem þýðir að hann verður fínn í +10 stiga hita fyrir mig. Hlakka til að prófa hann á Laugaveginum í sumar. Þarf reyndar að kaupa Iceberg nærföt úr Merino ull (íslensku rollurnar er víst ekki nógu einangrandi) svo ég krókni ekki úr kulda, geri það bráðum, get gert það fyrir peninginn sem ég fékk frá mömmu og pabba!.
Útsölumatur og afgangar fyrir gyðinga
Allavega þegar við fluttum fyrst til Bretlands, árið 2001 þá tókum við eftir því í búðunum um þetta leyti árs að það var verið að selja vörur sem voru á hebresku (og öðru hrognamáli eflaust). Það voru settir upp sérstakir standar (svipaðir og tilboðsstandar) og t.d. var Sprite, Coca Cola og alls kyns kex sérstaklega merkt á hebresku. Þetta var nú svo sem ekki merkilegt nema að fyrir ofan þennan „tilboðsstand“ stóð Passover“ og stundum “Jewish Passover“ (sem er víst ekki það sama) sem mér finnst svo líkt „Leftover“ (afgangar). Mér fannst eitthvað ægilega glatað við það að gyðingum væri boðið upp afganga eða útrunnar vörur og verið að auglýsa það í þokkabót!!! Mér fannst gyðingar búnir að þola nóg í gegnum tíðina sko.
Á hverju ári klóruðum við okkur í kollinum yfir þessu (en gerðum að sjálfsögðu ekkert í því að fræða okkur um þetta mál) og árin liðu og núna fyrst veit ég lauslega hvað Passover er og það hefur ekkert með afganga eða útrunnar vörur að gera. Ég vinn sem sagt með nokkrum Gyðingum og þeir eru núna í sínu Passover fríi. Svona í stuttu máli þá er Passover hátíð gyðinga til að halda upp á frelsun þeirra frá Egyptum fyrir um 3500 árum. Þeir þurfa að borða sérstakan Kosher“ mat og það felur í sér til dæmis að þeir mega ekki borða neina fiskafurð aðra en þá sem hefur tálkn og ugga, mega til dæmis ekki borða rækjur eða humar. Kosher“ þýðir „Það sem er rétt og fylgir reglunum“. Það eru mjög ákveðnar reglur um hvað fólk má borða (t.d. má ekki borða dýr með klaufir og ekki áðurnefndar rækjur), það má ekki blanda saman mjólk og kjöti og það verða að vera 3 tímar á milli þess sem fólk borðar mjólk og kjöt og svo framvegis. Þetta þýðir að það má ekki borða ís strax á eftir kjötmáltíð sem tryggir það að Jóhannes tekur ALDREI upp gyðingatrú, það er nokkuð ljóst (Jóhannes er sá sem kemst næstur mér í trúleysi, góð saman að klóra okkur í hausnum yfir afgöngunum fyrir gyðinga sko).
Það sniðugusta held ég við að vera gyðingur er að maður getur farið heim fyrir sólsetur á föstudögum (Til heiðurs einhverjum Sabbath dúd). Í Ísrael og fleiri stöðum lokar allt fyrir sólsetur á föstudögum og opnar ekki fyrr en á sunnudegi. Að „heiðra Sabbath“ þýðir líka að maður má ekki „valda því að einhver annar vinni. Það þýðir líklegast að það er bannað að handleggsbrjóta sig á laugardögum??? En spáið í það að geta farið heim fyrir sólsetur, sérstaklega á veturna á Íslandi, maður væri bara í vinnunni um það bil 2 tíma eða svo á föstudögum. Reyndar væri það ekki gott yfir sumartímann, maður væri kannski bara allan sólarhringinn í vinnunni.
Er að spá í að segja þeim hérna í vinnunni að ég fylgi Ásatrú og ég þurfi trúarinnar vegna að fara heim alla daga kl 4 til að tilbiðja Þór og Óðinn en að mjög mikilvægt sé að fara heim kl 2 á föstudögum. Það er jú í lögum að fyrirtæki eigi að aðlaga sig að trúarbrögðum fólks hí hí. Sjáum til.
Til hamingju með daginn pabbi og gleðilegt sumar
Já og gleðilegt sumar allir!!!
Kaffi og appelsínur
Hafið þið prófað að drekka appelsínusafa og kaffi strax þar á eftir? Oj. Það er eins glötuð samsetning eins og að drekka kaffi strax á eftir hangikjöti (þó að það sé langt síðan ég borðaði hangikjöt þá man ég enn vonda bragðið). Nú veit ég ekki hvort ég er að misskilja eitthvað, hvort maður eigi bara að drekka appelsínusafann þegar maður er búinn að borða og drekka kaffið fyrst eða hvort maður eigi að drekka kaffið síðast. Það eru aldrei neinar leiðbeiningar sko og mér finnst fólk í bíómyndum alveg drekka appelsínusafa og kaffi í belg og biðu án þess að spá í það. Mér finnst alltaf öruggast að drekka appelsínusafann með morgunmatnum og drekka svo kaffið, allra síðast en vandinn er að á hótelum þá fær maður oft kaffi í bollann um leið og maður fær appelsínusafann í glas og þá er þetta orðið flókið því ég vil drekka kaffið mitt heitt (og ég meina sjóðandi heitt). Þá þarf ég að drekka kaffið fyrst en það er glatað að drekka kaffi á fastandi maga og bragðkirtlarnir mínir eru bara ekki vel undirbúnir undir svona kaffiárás áður en þeir fá mat til að hugsa um. Svo þá er ég komin í klípu; sleppi ég kaffinu, drekk ég það á fastandi maga eða drekk ég það eftir matinn þegar það er orðið kalt (því ég borða frekar mikið á morgnana og borða frekar hægt). Þetta er rosaleg klípa. Já þau eru mörg vandamál heimsins sko.
Ég vona að gestirnir okkar (Gróa móðursystir mín og Sigga dóttir hennar) fyrirgefi okkur þó við setjum þessa hallærissamsetningu á borðið (þ.e. kaffi og appelsínusafa, ekki kaffi og hangikjöt). Eftir allt saman, þá er voða notalegt að sjá kaffi og appelsínusafa á morgunverðarborðinu, það er jú alltaf svoleiðis í bíómyndunum. Annars er ég spennt að vita hvort einhver þekkir verri bragðsamsetningu en kaffi/appelsínusafa eða kaffi/hangikjöt??
Piparkökukallar í hættu!
Hvað ætli markaðsfólkið / hönnunarfólkið hafi verið að hugsa þegar það ákvað útlit á umbúðunum „Hmmmm við skulum setja afhausaða piparkökukalla á umbúðirnar og svo á einn piparkökukall að hafa skelfingarsvip líka því hann á að vera hræddur um að vera næsta fórnarlambið“. Þessar hryllingsumbúðir koma úr Tesco sem er svona venjuleg matvörubúð. Æi ég veit ekki, finnst blóm eða mynstur bara heppilegri held ég.
Nýtt útlit
Ég vona að þið séuð ánægð með nýtt útlit en ef ekki endilega látið mig vita. Við höfum lagt hellingsvinnu í að gera vefinn aðgengilegan fyrir alla notendur (fatlaða jafnt sem ófatlaða) en alltaf má betur fara og ég er þakklát fyrir allar ábendingar, jákvæðar sem neikvæðar. Ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga um það sem á dagana drífur, aðallega um eitthvað matartengt t.d. góð veitingahús í London (en þar búum við Jóhannes maðurinn minn), fréttir um heilsu og mat og fleira en það kemur í ljós hversu dugleg ég verð.