Bloggið

Sólarhringur from hell

Jæja þá er aðgerðin búin og hún gekk bara vel. Ég sit upp í sófa og hoppa um á hækjum. Mér leið vel eftir svæfinguna, var ekkert flökurt eða neitt. Það fyrsta sem ég sagði þegar ég var vakin var "mér er kalt", svæfingarhjúkkurnar héldu að ég væri eitthvað rugluð og létu mig hreyfa tærnar aftur og aftur og spurðu mig hvort ég vissi hvar ég væri og hvað ég héti og svona. Það var ekki fyrr en þær áttuðu sig á því að ég skalf undir teppinu að mér var raunverulega kalt. Í samanlagðri 40 ára vinnuævi svæfingarhjúkrunarkvennanna hafði enginn sagt við þær "mér er kalt" sem fyrstu orð eftir svæfingu. Einhvern tímann er allt fyrst svo sem.

Já en þetta voru annars ekki skemmtilegir 24 tímar. Þegar ég kom heim úr vinnunni miðvikudagskvöldið þá ætlaði ég bara að henda af mér dótinu og stökkva út aftur því við Jóhannes ætluðum að kaupa síðustu jólagjafirnar og hafa það kósí í bænum, fá okkur kaffi og rölta um. Það varð ekkert rosalega kósí. Þegar ég labba upp stigann þá sé ég að hurðin að íbúðinni er mölbrotin og ég heyri raddir og sé ljós þar inni. Ég varð auðvitað skelfingu lostin og hljóp niður stigann til að hringja á lögregluna. Ég fattaði samt ekki alveg hvað var í gangi, maður panikkar eiginlega bara. Ég var komin langleiðina út þegar maðurinn á efstu hæðinni (ofsalega indæll náungi) kom og náði í mig út. Þá var sem sagt búið að brjótast inn í íbúðina okkar og HREINSA út úr henni. Allt úr skúffum hafði verið rótað upp, allir skápar opnaðir og það var allt í rusli út um allt. Það hefur aldeilis verið fengur fyrir þetta lið því inni í íbúðinni var margt og mikið af tækjadóti, t.d. var glæný Canon EOS 20D stafræn myndavél, 3 linsur og meðal annars ein sem við keyptum í New York, linsa sem ég keypti sérstaklega fyrir CafeSigrun. Hún var ekki ódýr. Litla Olympus, stafræna vélin var tekin, báðar fartölvurnar (við erum með vinnuvél frá Jóhannesi í láni) og önnur fartölvan var innan við mánaðargömul. Öll gögnin mín eru horfin og ekki séns að þau komi aftur, það er nokkuð ljóst. Það sem mér finnst samt eiginlega sárast er að ég var búin að fá svo mikið af fallegum bréfum frá alls konar fólki varðandi CafeSigrun vefinn og það er allt farið, það finnst mér æginlega leiðinlegt. Eins eru myndirnar sem ég tók fyrir CafeSigrun úti í New York farnar. Ein lófatölva var tekin, ipod (gamall reyndar) og úrið mitt ásamt fullt af skartgripum (sem voru ekki dýrir en sama er, mig langar ekki að einhver annar sé með dótið mitt sko). Verstu fréttirnar? Ekkert af þessu var tryggt. Neibb, við héldum að hurðin væri trygg, hún er með 3 lásum en það virtist ekkert stoppa þá. Við erum að bíða eftir nýrri hurð með stálplötu að innan.

Það sem er samt mest svekkjandi er að þetta er 100% öðrum að kenna. Útidyrahurðin að húsinu lokast nefnilega illa þegar er kalt og það er búið að biðja alla íbúa hússins um að passa þetta rosalega vel, meira að segja var sent bréf á þessar 6 íbúðir í vikunni og þetta ítrekað. Við bíðum t.d. alltaf eftir því að hurðin lokist áður en við göngum í burtu og ef við erum með gesti þá er þetta það fyrsta sem við segjum við þá. Það var brotist inn í okkar íbúð nefnilega fyrir einhverjum árum síðan (meðal annars ástæðan fyrir því að við héldum að gengið hefði verið tryggilega frá hurðinni að íbúðinni okkar) og þess vegna pössuðum við okkur rosalega vel. Við vitum að allir íbúar hússins passa þetta líka, fyrir utan 2 konur, frekar nýjir leigjendur sem búa á jarðhæðinni. Þær eru svona týpur sem henda póstinum fyrir húsið í gluggakistuna en raða honum ekki eftir íbúðum eins og allir hinir gera. Oftar en ekki, þegar við förum í ræktina kl 6 á morgnana þá er útidyrahurðin opin yfir nótt. Það er eitthvað sem má ekki gerast, sérstaklega ekki í London. Til dæmis er ég að hugsa um það að ef ég hefði farið ein í ræktina að morgni (eitthvað sem mér er reyndar illa við og geri sjaldan hér) þá hefði einhver bara getað beðið niðri í gangi eftir mér, svo einfalt er það. Eins líka þegar ég kem heim á daginn þá er ég yfirleitt fyrst heim. Þess vegna er ég t.d. aldrei með ipodinn á mér þegar ég labba upp stigann. Maður er dáldið paranoid en það er alveg ástæða fyrir því hér í London. Þó hún sé friðsæl og við búum í góðu hverfi þá getur maður aldrei verið viss.

Já annað líka, ég kom heim í hádeginu þennan dag til að skila af mér böggli sem ég hafði keypt fyrir vinkonu mína fyrir manninn sinn í jólagjöf (sem betur fer var hann ekki tekinn því þetta var glænýtt tæki sem kostar pening). Hann var í bóluplasti og þjófarnir hafa ekki séð hann því pakkinn var ofan á eldavélinni með dóti ofan á. Þeir hefðu kippt honum með hið fyrsta ef þeir hefðu áttað sig á því hvað þetta var. En já ég kom heim í hádeginu og fór héðan út kl 13.15 cirka (andskotaðist ekki til að taka stóru myndavélina eins og ég ætlaði mér að gera, hefði betur átt að gera það) og einhver kom að þessu um 16.30. Sem þýðir að ef ég hefði farið seinna í mat (eins og ég ætlaði mér) og miðað við að þeir hafa sennilega farið um í björtu þá hefði ég getað lent á þeim. Það hefði ég ekki viljað takk fyrir.

Við erum svo brennandi reið yfir þessu öllu saman. Auðvitað áttum við að vera með tryggingar en í fyrsta lagi þá þarf maður að tryggja svona hluti sérstaklega hér í London og við vorum nýbúin að kaupa sumt af þessu og bara ekki búin að hugsa svo langt enda alltaf brjálað að gera í vinnunni og í öðru lagi töldum við að hurðin væri trygg. Þjófarnir fóru beint í okkar íbúð, annað hvort vegna þess að þeir sáu á einhvern hátt að hurðin var ekki eins trygg og hinar á 1. og 2. hæð eða þá að þeir eru búnir að vera að fylgjast með okkur :( Vona að það sé það fyrra.

Já frekar glatað að vera hálf vönkuð og hafa líka þetta til að hugsa um, endalaus straumur af löggum, Crime Scene Investigation lið, menn til að laga hurðina og mæla, menn til að taka skýrslur, menn til að setja nýja hurð í. Sem betur fer er Jóhannes líka heima svo hann getur dílað við mest af þessu. Hann er að dekra mig út í eitt eins og venjulega, krúttið.

Ok ég held ég sé búin að pústa nóg. Fyrir ykkur sem fáið dálítið skítuga pakka í ár, þá voru sumir þeirra sem voru komnir í jólapakkana rifnir upp af þjófunum svo þeir voru fingrafaraleitaðir. Get ímyndað mér að litlu frændunum finnist það spennandi :)

Best að fara að vorkenna mér smá núna :( Æi þetta hefði getað farið verr ég veit og við erum bæði heil, við reynum bara að hugsa um það.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Lyftan

Heyrði frábært orðatiltæki í vinnunni áðan. Þar var maður að tala um unga, ljóshærða stúlku sem er ekkert allt of gáfuð og hann sagði "her elevator doesn't go to the top floor" he he. Lyftan fer sem sagt ekki alla leið upp á efstu hæð. Svo fyndin sum orðatiltækin hjá Bretunum. Eigum við einhver svona orðatiltæki? „Stígur ekki í vitið“ er til dæmis ekkert fyndið :)
Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Allt stíflað

Jæja þá eru gestirnir farnir og ég held að hver einasta búð í allri London hafi fengið að finna fyrir kauporku mæðgnanna. Staða krónunnar hefur líka veikst gagnvart pundinu síðustu daga! Þær voru nú ekki bara að versla, Sigrún S bauð okkur út að borða m.a. á Archipelago (staðurinn með kengúrukjötinu og súkkulaði sporðdrekunum) og það var rosa fínt. Þær mæðgur voru ánægðar með staðinn og ég held að þetta sé að verða uppáhaldsstaðurinn okkar Jóhannesar. Allavega sá staður sem við myndum fara á hérna í London til að borða góðan mat og hafa það notalegt.

Það er allt gott að frétta annars nema ég er búin að næla mér í kvef og er með kolstíflað nef. Það er alls ekki nógu gott því ég má ekki vera með kvef eða á annan hátt lasin þegar ég fer í aðgerðina á fimmtudaginn. Ég verð því að vera búin að ná þessu úr mér í kvöld, annars þarf ég að láta vita. Það er ekki glæta hins vegar að ég ætli að fresta þessu þannig að ég verð þá bara að fela kvefið. Ég vona bara að ég fái ekki í hálsinn líka því það er erfiðara að fela hósta og hálsbólgu en kvef. Leiðinlegt fyrir hina sjúklingana samt ef ég smita þá. Skiptir svo sem engu máli, skilst að spítalinn verði nánast tómur sko hvort eð er.

Við fórum í jólagjafaleiðangur í gær, held að sé nánast allt komið. Ekki glæta að ég nenni að kaupa jólagjafir í London á hækjum he he. Við eigum eftir að kaupa smotterí og svo nokkra pakka á Íslandi. Kannski að ég skrifi jólakortin í kvöld ef ég hef tíma!

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Fleiri gestir

Jæja þá eru næstu gestir að fara að detta inn í hús. Það eru Sigrún S og Sigrún E (tengdamamma og mágkona). Það verða sem sagt 3 Sigrúnar í íbúðinni. Erum svo sem vanar því. Mamma Sigrúnar S hét sko Sigrún líka svo stundum vorum við 4 (og jafnvel fleiri). Hugsa í hvert skipti að nú láti ég bæta við nafnið mitt í Þjóðskránni. Hugmyndir eru vel þegnar. Þoli ekki að heita bara Sigrún, það heitir önnur hver manneskja Sigrún. Frábært þegar maður býr svona erlendis að geta logið því að þetta sé afar sérstakt nafn, að enginn annar heiti Sigrún á Íslandi. Þeir trúa því alveg, sérstaklega þegar maður bætir föðurnafninu við, Þorsteinsdóttir. Þá finnst þeim nafnið sveipað miklum ævintýraljóma og að það hljóti að vera tengt álfum og skrýtnum verum.

En já þær mæðgur ætla eitthvað að skoða jólagjafir skilst mér og versla, fara út að borða, á söngleik (Mamma Mia) og hafa það kósi bara.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Rétt staða klósettrúllunnar LOKSINS

Svona á klósettpappír að snúa rétt, með lausa endann ofan á

HAH. Loksins er komin staðfesting á því sem ég er búin að vera að rífast yfir í mörg, mörg ár, verið í kvíðakasti yfir og hingað til talið vera 100% staðfestingu á persónuleikabresti hjá fólki sem gerir þetta VITLAUST.

SEM SAGT eins og sjá má á myndinni þá Á klósettpappírinn að snúa þannig að lausi pappírinn sé ofan á rúllunni, EKKI undir.

Ég tók þessa mynd á klósetti nýja spítalans hérna í London. Það var dáldill hamagangur í mér þegar ég var að reyna að rífa lokið af og taka mynd með símanum mínum. Held að konunni sem beið fyrir utan hafi þótt ég eitthvað furðuleg, eða haldið að ég væri með rosa illt í maganum eða eitthvað. Voru rosa læti í mér he he. Allavega, staðfestingin komin og óþarfi að rífast meira yfir þessu. Vei þeim sem reynir.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Áströlsku hermannakökurnar (ANZAC)

Áströlsku hermannakökurnar Var að setja inn þessa uppskrift á CafeSigrun. Það er smá saga á bak við hana. Ég fékk reyndar staðfestingu á því að þetta væru afar merkilegar kökur frá Ástrala sem við Jóhannes hittum í gærkvöldi. Þessar ANZAC kökur (skammstöfun fyrir Australia and New Zealand Army Corps) eru bakaðar við hátíðleg tækifæri í þeim löndum, svona eins konar þjóðhátíðarkex. Við hittum sem sagt náungann sem sat við hliðina á mér í fluginu til Íslands um daginn (ekki arkitektinn heldur hinn) og hann staðfesti þetta, var mjög sár yfir því að hann hefði ekki fengið að smakka hermannakökurnar. Við erum annars í því að hata hann djúpt, hann er að fara að ferðast um alla Evrópu áður en hann snýr aftur til Ástralíu. Við eigum annars orðið nokkur heimboð í Ástralíu!! Við þurfum að taka þau út greinilega, væri ágætt ef fólk er vel dreift þar sem Ástralía er dáldið stór. Verður nóg að gera í svona 3 mánuði að heimsækja fólk og keyra á milli he he.

Hér er uppskriftin:

Ástralskar hermannakökur

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Stóri dagurinn

Já, ég man ekki hvort ég var búin að segja að ég fer í aðgerðina 8. desember. Væri svo sem ekki í frásögu færandi nema af því að það á að LOKA spítalanum mjög fljótlega. Ætli verði ekki lokað á eftir mér bara, ég gæti alveg verið síðasti sjúklingurinn, verður skellt í lás á eftir mér. Ætli húsvörðurinn framkvæmi ekki aðgerðina, allir læknar farnir. Það er verið að sameina og samræma alla spítalana hérna í kring (sem eru um 15 talsins í 1 km radíus) og þeir flytjast allir í nýju bygginguna hérna rétt hjá. Er voðalega svekkt yfir því að vera ekki á nýja spítalanum því það er nógu auðvelt að fá alls kyns sýkingar á nýjum, breskum spítölum, hvað þá gömlum. Oj.

Annars fékk ég mjög gagnlegt blað frá hjúkkunni um daginn sem á stóð meðal annars:

Við hverjum má búast eftir aðgerðina: Efst á lista, undirstrikað og feitletrað var þetta:

PAIN

En gaman :(

Spítalinn er annars bara hérna 5 mínútum frá íbúðinni okkar, alveg spurning með að fá lánaðan hjólastól bara. Það er of langt að labba eftir aðgerðina en samt of stutt að taka leigubíl. Sainsburys er beint á móti, kippum kannski bara innkaupakerru með.

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

New York myndir komnar

Jæja þá eru myndirnar komnar á vefinn fyrir þá sem vilja skoða á vefnum hans Jóhannesar

New York myndirnar komnar á netið

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It  

Íslensku vefverðlaunin 2005

Fylgist spennt með þeim. Ég átti sko að vera í dómnefnd (sem er mjög mikill heiður) en af því að ég er hérna í London og ég hefði þurft að funda nokkuð stíft þessa vikuna þá gat ég ekki verið með. Fannst það reyndar mjög leiðinlegt en ég verð vonandi með á næsta ári.

Ég er ekki sammála öllum tilnefningum í ár en það er gott að ekki allir eru sammála um hvað er gott og vont. Ég er líka ansi spennt fyrir hönd margra vefjanna enda komið að mörgum þeirra á einhvern hátt vegna vinnunnar.

Verður spennandi að sjá úrslitin. Held með einum sérstaklega í fyrirtækjalistanum, vona að hann vinni! Verðlaunin verða afhent núna á eftir kl 17 í Iðnó. Speeennóóó.

Íslensku vefverðlaunin 2005

Senda á facebook   Senda uppskriftina á twitter   Pin It