Banana- mango og sveskjumauk

Þessi blanda er heppileg fyrir börn sem eru farin að tyggja litla bita. Það þarf að mauka sveskjurnar vel því oft eru litlar flyksur eftir sem litlum börnum gengur illa að kyngja. Maukið hentar 9 mánaða og eldri. Sum börn þola vel að fara að borða aðeins grófari fæðu um 7 mánaða en þið þurfið bara að meta hvað hentar ykkar börnum. Sveskjur geta verið gríðarlega losandi fyrir litla maga svo farið gætilega í fyrstu skiptin. Sveskjur eru einnig járnríkar, sérstaklega af því mango er í maukinu en það hjálpar við upptöku járnsins.

Athugið að skammtastærðin er einungis viðmið. Sum börn þurfa meira og önnur minna. Einnig getur skipt miklu máli hvort barn er byrjað að skríða og hreyfa sig, varðandi hversu mikið það borðar.

Þessi uppskrift er:

  • Án glúteins
  • Án eggja
  • Án hneta

Þessa uppskrift er auðvelt að gera:

  • Án mjólkur
  • Vegan (fyrir jurtaætur)

Banana- mango og sveskjumauk

Gerir 6-8 skammta

Innihald

  • 150 g lífrænt ræktaðar steinalausar sveskjur, gufusoðnar
  • 100 g banani, afhýddur og stappaður
  • 100 g mango, gufusoðið eða mangomauk
  • 1-2 tsk móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk
  • 1 tsk kókosolía (eða önnur olía) eða smjör

Aðferð

  1. Afhýðið mangoið og skerið 100 g af kjötinu í bita.
  2. Saxið sveskjurnar gróft (til að ganga úr skugga um að ekki séu steinar í þeim).
  3. Gufusjóðið sveskjurnar og mangoið í um 20 mínútur eða þangað til vel mjúkt.
  4. Hellið sveskjunum og mangoinu ásamt svolitlu soðvatni eða mjólk í matvinnsluvél og blandið vel. Bætið banana út í og maukið áfram í nokkrar sekúndur. Einnig er hægt að nota töfrasprota eða matvinnsluvél. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða mega vera litlir bitar í maukinu.
  5. Bætið olíunni saman við og hrærið vel.
  6. Ef blandan er of þykk bætið þá svolitlu af soðvatninu saman við.

Gott að hafa í huga

  • Maukið má frysta en athugið að það verður ekki fallegt á litinn.
  • Nota má gufusoðna peru í staðinn fyrir mango eða banana.
  • Gott er að frysta maukið í ísmolabox. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
  • Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við meira af vatni/mjólk ef ykkur finnst það henta.
  • Gott getur verið að bæta við meira magni af móðurmjólk/þurrmjólk/stoðmjólk út í maukið í fyrstu skiptin, þannig fæst kunnuglegt bragð sem sumum börnum líkar vel.
  • Gott er að blanda svolitlu af hrísmjöli/maísmjöli/hirsimjöli saman við grautinn til að fá matarmeiri graut.
  • Ég nota einungis lífrænt ræktað hráefni í barnamat og ég gufusýð alla ávexti og allt grænmeti.
  • Vörur frá Holle, Babynat, Baby Organic og Organix eru mjög góðar og mæli ég með þeim.
  • Ef þið eruð stödd þar sem þið getið ekki blandað hráefnið má bjarga sér með hvítlaukspressu (fyrir litla skammta)!